Of margir farþegar í vinnuvél á Keflavíkurflugvelli
Vinnuvél var ekið um flughlað á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun og voru þrír farþegar auk ökumanns í framsæti hennar, sem er bekkur. Í körfu vinnuvélarinnar var svo fimmti maðurinn. Við athugun lögreglu kom í ljós að ökumaðurinn hafði ekki réttindi til að aka vinnuvél af þessu tagi. Honum var því tjáð að hann gæti ekki haldið áfram vinnu á vélinni og var farþegunum smalað út.