Ódýrast í sund í Reykjanesbæ
Ódýrast er að fara í sund í Reykjanesbæ ef keyptur er stakur miði, eða 370 krónur. Hins vegar er stakur sundmiði dýrastur í Kópavogi og Árborg, 550 krónur. Munurinn er því 180 krónur eða 49%.
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð og breytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins milli ára. Sveitarfélögin sem skoðuð voru hafa hækkað gjaldið á stökum miða í sund fyrir fullorðna um 4-23%. Árskort fullorðinna hefur hækkað hjá 11 sveitarfélögum af 15 um 3-23%. Aðeins Reykjavík, Reykjanes, Árborg og Seltjarnarnes hafa ekki hækkað árskortið hjá sér. Hjá 10 sveitafélögum af 15 er greitt fyrir börn á grunnskólaaldri í sund. Reykjanesbær, Árborg, Akranes, Skagafjörður og Vestmannaeyjar eru með frítt fyrir börn í sumd, en í sumum tilvikum þó aðeins fyrir innanbæjarbörn.
Öll sveitarfélögin hafa hækkað hjá sér gjaldskrána á stakri sundferð milli ára. Mesta hækkunin er í Hafnarfirði um 32% eða úr 340 kr. í 450 kr. Minnsta hækkunin er á Akureyri 4%. Þar fer gjaldið úr 450 kr. í 470 kr. og á Ísafirði um 4% eða úr 490 kr. í 510 kr.
Sjá nánar.