Ódýrar lóðir í Garðinum
Athygli vekur hve lág byggingaleyfisgjöld eru í Garðinum, en það er trúlega vandfundið það sveitarfélag á landinu, þar sem þau eru ódýrari.Fyrir 190 fermetra einbýlishús á 900 fermetra lóð þarf að greiða 320 þúsund krónur í bygginga-og gatnagerðagjöld. Fyrir 140 fermetra parhús á 550 fermetra lóð, þarf að greiða 170 þúsund krónur í bygginga-og gatnagerðagjöld.