Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Fréttir

Oddvitasætið: Vill stýra vexti Voganna af ábyrgð
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 12:00

Oddvitasætið: Vill stýra vexti Voganna af ábyrgð

Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum, segir að brýnasta verkefni sveitarfélagsins sé að tryggja að innviðir og þjónusta haldi í við öra íbúafjölgun. Í viðtali við okkur kynnir hún svokallað „Vogamódel“ í leikskólamálum, sem felur meðal annars í sér 30 stunda gjaldfrjálsa dvöl og aukinn sveigjanleika fyrir barnafjölskyldur. Björg leggur áherslu á að vöxtur bæjarins eigi ekki að vera sjálfsgildi, heldur þurfi hann að vera skipulagður með lífsgæði íbúa og sérstöðu bæjarbragsins að leiðarljósi.

Hvað telur þú vera stærsta kosningarmálið í sveitarfélaginu Vogum og hvers vegna?

Aðalbros
Aðalbros

„Að mínu mati snúast þessar kosningar fyrst og fremst um hvernig við ætlum að stýra vexti sveitarfélagsins á næstu árum og ekki síður hvernig við ætlum að mæta þeirri stöðu sem er komin upp í dag. Vogar eru í örum vexti og því skiptir miklu máli að þjónusta og innviðir haldi í við fjölgun íbúa. Við þurfum að fjölga leikskólaplássum, styrkja skóla- og íþróttastarf, bæta þjónustu við íbúa og skapa fleiri atvinnutækifæri, samhliða því að við höldum í bæjarbraginn og bætum lífsgæði íbúa.“

Ef þú mættir aðeins nefna eitt mál sem þið mynduð keyra í gegn á fyrstu 100 dögunum - hvað er það og hvernig munu íbúarnir finna fyrir því?

„Ef ég ætti að nefna eitt mál sem við myndum leggja sérstaka áherslu á á fyrstu 100 dögunum væri það að hefja innleiðingu Vogamódelsins og fara strax í aðgerðir í leikskólamálum. Það er eitt stærsta og brýnasta mál sveitarfélagsins í dag og mál sem margar fjölskyldur finna fyrir í daglegu lífi. Vogamódelið felur meðal annars í sér 30 klukkustunda gjaldfrjálsa leikskóladvöl, sveigjanlegri skráningu dvalartíma, hvata sem styðja við styttri vistun þegar það hentar og aukið svigrúm til undirbúnings og faglegs starfs í leikskólum, án þess að leikskólagjöld hækki. Samhliða því viljum við fjölga leikskólaplássum, bæta starfsaðstæður og ráðast í raunhæfar aðgerðir sem fjölskyldur og starfsfólk finna fyrir strax.“

Hvað er það sem skilur ykkar framboð skýrast frá hinum flokkunum í sveitarfélaginu í þessum kosningum?

„Það sem skilur okkur helst frá öðrum framboðum er áherslan á raunhæfar og framkvæmanlegar lausnir. Við viljum að uppbygging, þjónusta og innviðir haldi betur í við þann vöxt sem hefur verið í sveitarfélaginu, á sama tíma og við höldum í bæjarbraginn og bætum lífsgæði íbúa.

Við höfum lagt fram skýrar og tímasettar aðgerðir fyrir fyrstu 190 daga kjörtímabilsins, svo íbúar sjái betur hvernig við ætlum að fylgja stefnumálum okkar eftir í framkvæmd. Við erum jafnframt skýr með að við viljum halda áfram að styrkja rekstur sveitarfélagsins þannig að svigrúm skapist til frekari lækkunar fasteignaskatta og annarra álaga á íbúa og fyrirtæki.

Fyrir okkur snúast þessi mál ekki bara um framtíðarsýn heldur líka um að ráðast í raunverulegar aðgerðir sem fólk finnur fyrir í daglegu lífi.“

Vogar er sveitarfélag í örum vexti og íbúum fjölgar hratt; hvernig ætlið þið að tryggja að innviðir haldi í við fjölgunina án þess að skuldsetja bæinn um of?

„Að okkar mati gerist þetta með skýrri forgangsröðun, ábyrgri fjármálastjórn og langtímahugsun í skipulags- og framkvæmdamálum, fremur en því að ráðast í allt í einu.

Við viljum leggja áherslu á þær framkvæmdir sem hafa mest áhrif á daglegt líf íbúa, eins og leikskólamál, samgöngur, umferðaröryggi og grunnþjónustu. Samhliða því viljum við styðja við atvinnuuppbyggingu og skapa skilyrði fyrir fleiri fyrirtæki til að starfa í sveitarfélaginu, þannig að bæði atvinnutækifærum fjölgi og tekjustofnar bæjarins verði sterkari til lengri tíma.

Við teljum einnig mikilvægt að sveitarfélagið sé opið fyrir samstarfi við einkaaðila þar sem það er hagkvæmt og þjónar hagsmunum íbúa, til dæmis þegar kemur að uppbyggingu eða rekstri þjónustu á borð við leikskóla.

Í skipulagsmálum viljum við leggja meiri áherslu á sérbýli og hóflegri uppbyggingu í stað mikillar þéttingar. Uppbygging þarf að taka mið af bæjarbragnum og þeirri sérstöðu sem gerir Voga að góðum stað til að búa í.

Markmiðið er að sveitarfélagið vaxi á ábyrgan og sjálfbæran hátt, með sterkari innviðum, öflugri þjónustu og góðum lífsgæðum fyrir íbúa.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar