Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Fréttir

Oddvitasætið: Ríkið verður að standa með okkur til lengri tíma
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 11:50

Oddvitasætið: Ríkið verður að standa með okkur til lengri tíma

„Grindavík hefur skilað miklum verðmætum til þjóðarbúsins og það er eðlileg krafa að ríkið styðji við bakið á okkur í þessum fordæmalausu aðstæðum,“ segir Ásrún Kristinsdóttir, oddviti Framsóknar. Hún segir óviðunandi að ríkisfyrirtæki á borð við Þórkötlu greiði ekki lögbundin gjöld til bæjarins og kallar eftir meiri fyrirsjáanleika fyrir íbúa og fyrirtæki. Ásrún fer hér yfir hvernig Framsókn vill forgangsraða í þágu raforkuöryggis, hafnarstarfsemi og skólamála, á sama tíma og skynsemi og ábyrgð er haldið til streitu í rekstri bæjarfélagsins.

Forgangsröðun í enduruppbyggingu og öryggi:
Ef fjárhagslegt svigrúm bæjarins verður takmarkað á næsta kjörtímabili, hvaða þrjá innviði eða þjónustuþætti mun þinn flokkur setja í algjöran forgang og hverju ertu tilbúinn að fresta?

Forgangsröðunin þarf að vera skýr og ábyrg. Við þurfum að halda áfram að byggja upp samfélagið á traustum grunni og tryggja bæði öryggi fólks og þá innviði og þjónustu sem fólk þarf á að halda til að geta búið og starfað í Grindavík.

Aðalbros
Aðalbros

Áherslan verður á mikilvæga innviði eins og raforku ásamt öflugri skóla- og velferðarþjónustu. Atvinnulífið verður áfram í forgangi, sérstaklega hafnarstarfsemi og tengd störf sem eru grunnstoðir samfélagsins ásamt ferðaþjónustu.

Skynsemi hefur verið í fjármálum og áhersla lögð á að framkvæma fyrir handbært fé. Á sama tíma þurfum við að horfa til þess hvaða innviði samfélagið hefur misst og hvað er mikilvægt fyrir framtíðina. Verkefnin sem farið verður í á kjörtímabilinu verða því að snúa fyrst og fremst að því að styrkja samfélagið til framtíðar og líklegt er að einhverjum framkvæmdum þurfi að áfangaskipta eða fresta þar til meira svigrúm skapast. Horfa þarf til mikilvægra samfélagsinnviða fyrir börn og aðra hópa eins og aðstöðu til íþrótta og útivistar.

Ekki má vanmeta mikilvægi samfélagslegra verkefna. Grindavíkurbær hefur lagt töluvert fjármagn í viðburði, íþróttastarf og félagslíf á síðustu misserum og það hefur skipt miklu máli fyrir samfélagið á meðan fólk hefur verið dreift um allt land. Þessum fjármunum hefur verið vel varið og við viljum halda áfram að styðja við það sem heldur samfélaginu saman.

Framtíðarsýn og íbúafjöldi:
Hvert telur þinn flokkur að sé raunhæft íbúamarkmið fyrir Grindavík eftir fjögur ár og með hvaða beinu aðgerðum ætlið þið að styðja við þá sem vilja búa áfram í bænum eða flytja aftur heim?

Raunhæft markmið næstu fjögur ár er að Grindavík verði aftur samfélag þar sem fólk sér framtíð fyrir sér. Ef rétt er staðið að uppbyggingu og stuðningi við samfélagið er raunhæft að horfa til þess að íbúafjöldinn geti verið í kringum 2300 manns.

Til þess þarf fyrst og fremst að skapa traust og fyrirsjáanleika. Fólk þarf að finna að það sé raunhæft að flytja aftur heim og byggja líf sitt upp að nýju. Þar skiptir máli öflug grunnþjónusta, skýrar upplýsingar, stuðningur við húsnæði og að atvinnulífið fái skilyrði til að vaxa enn frekar.

Við þurfum líka að mæta fólki af virðingu. Sumir eru tilbúnir að snúa aftur heim á meðan aðrir þurfa meiri tíma og meiri vissu áður en þeir taka þá ákvörðun. Hlutverk bæjarins er að styðja við bæði öryggi fólks og framtíðarsýn samfélagsins.

Samband við ríkisvaldið:
Hvernig ætlar þinn flokkur að tryggja að Grindavík fái réttláta meðferð og fjármagn frá ríkinu og hvar dregur þú línuna – hvenær er nóg komið af bið eftir ákvörðunum að ofan?

Grindavík hefur staðið frammi fyrir hamförum af þeirri stærðargráðu að ekkert sveitarfélag á Íslandi myndi ráða eitt við verkefnið. Þess vegna þarf ríkið að standa með okkur til lengri tíma.

Ríkið hefur þegar lagt mikla fjármuni í uppkaup fasteigna og það er mikilvægt að þeim verðmætum verði haldið við, húsin fái nauðsynlegt viðhald og að þau komist aftur í hendur fyrri eigenda sem vilja snúa heim áður en þau grotna enn frekar niður. Það er bæði hagsmunamál íbúa og þjóðarinnar allrar.

Grindavík hefur í gegnum tíðina skilað þjóðarbúinu miklum verðmætum með öflugum sjávarútvegi og sterkri ferðaþjónustu, þar á meðal starfsemi tengdri Bláa lóninu. Því er mikilvægt að styðja við uppbyggingu þessa öfluga samfélags.

Við viljum sjá skýrar tímalínur, gagnsæjar ákvarðanir og sanngjarna fjármögnun fyrir uppbyggingu bæjarins. Það er líka eðlileg krafa að ríkisfyrirtæki eins og Fasteignafélagið Þórkatla greiði fasteignagjöld og gjöld vegna vatns- og fráveitu af rúmlega níu hundruð eignum sem félagið á í Grindavík. Grindavíkurbær stendur undir rekstri innviða og þjónustu af þessum eignum en verður á sama tíma af tæplega 400 milljónum króna á ári, sem er ekki sanngjarnt.

Okkar hlutverk verður að tala af festu fyrir hönd íbúa og atvinnulífs. Óvissan hefur þegar haft mikil áhrif á íbúa og atvinnulíf í Grindavík. Þess vegna þarf að gera skýrar kröfur á ríkið og kalla eftir hraðari og afgerandi svörum þegar ákvarðanir dragast of lengi. Fólk og fyrirtæki geta ekki lifað í langvarandi biðstöðu.

Atvinnulíf og nýsköpun:
Hvernig ætlar þú að tryggja að Grindavík verði áfram eftirsóknarverður staður fyrir fyrirtæki og á þinn flokkur tillögu að nýrri atvinnusköpun sem getur dafnað samhliða sjávarútveginum við núverandi aðstæður?

Til þess að Grindavík verði áfram eftirsóknarverður staður fyrir fyrirtæki þarf að skapa stöðugleika, öryggi og fyrirsjáanleika. Sveitarfélagið þarf að bjóða upp á öfluga innviði, skilvirka stjórnsýslu og skýra framtíðarsýn í samstarfi við atvinnulífið. Það má heldur ekki gleyma því að atvinnulífið í Grindavík hefur sýnt ótrúlega seiglu á síðustu misserum. Sú staða sem samfélagið er í í dag væri ekki sú sama án fyrirtækjanna og þess krafts sem hefur haldið hjólunum gangandi við mjög erfiðar aðstæður.

Sjávarútvegurinn verður áfram grunnstoð samfélagsins en á sama tíma þurfum við að byggja upp fjölbreyttari atvinnusköpun. Þar sjáum við tækifæri í ferðaþjónustu og verkefnum sem tengjast náttúruvísindum, jarðfræði og rannsóknum á náttúru svæðisins. Grindavík hefur einstaka stöðu þegar kemur að þekkingu og reynslu tengdri náttúruöflunum og þar geta skapast ný tækifæri til framtíðar. Markmiðið er að byggja upp sterkara og fjölbreyttara samfélag þar sem fólk sér bæði öryggi og framtíðarmöguleika.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar