Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Fréttir

Oddvitasætið: Miðflokkurinn vill aukna sjálfstjórn Grindvíkinga
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 11:38

Oddvitasætið: Miðflokkurinn vill aukna sjálfstjórn Grindvíkinga

„Við þurfum að njóta sanngirni og okkur verður að vera treyst fyrir okkar eigin málum,“ segir Magnús Már Jakobsson, oddviti Miðflokksins. Hann telur nauðsynlegt að Grindvíkingar fái meira vægi í ákvarðanatöku í gegnum eigin almannavarnarnefnd og kallar eftir betra samstarfi við Fasteignafélagið Þórkötlu. Í stefnu Miðflokksins er skýr krafa um að þjónustustig í bænum nái sömu hæðum og fyrir atburðina 2023, með sérstaka áherslu á öryggi, atvinnulíf og hagsmuni íbúanna gagnvart ríkisvaldinu.

Forgangsröðun í enduruppbyggingu og öryggi:
Ef fjárhagslegt svigrúm bæjarins verður takmarkað á næsta kjörtímabili, hvaða þrjá innviði eða þjónustuþætti mun þinn flokkur setja í algjöran forgang og hverju ertu tilbúinn að fresta?

Við munum fara í viðræður við HS Orku varðandi afhendingaröryggi rafmagns og hringtengingu þeirra við Reykjanesvirkjun. Frekari uppbygging á höfninni er mikilvæg, t.d. flóðavarnir og uppbygging á Eyjabakka. Þjónusta við íbúa Grindavíkur á mörgum sviðum verður ofarlega á dagskrá og viljum við nálgast sambærilega þjónustu sem var í Grindavík 2023, þ.m.t. þjónusta við eldri borgara, fatlaða, skóla og leikskóla.

Framtíðarsýn og íbúafjöldi:
Hvert telur þinn flokkur að sé raunhæft íbúamarkmið fyrir Grindavík eftir fjögur ár og með hvaða beinu aðgerðum ætlið þið að styðja við þá sem vilja búa áfram í bænum eða flytja aftur heim?“

Forsenda þess að við getum haft einhverja stjórn á þessu er að Fasteignafélagið Þórkatla og yfirvald þess félags fari að spila með okkur en ekki á móti okkur. Varðandi beinar aðgerðir þá erum við með eitt af áherslumálum okkar að gefa 50% afslátt af leikskólagjöldum á fyrsta ári með hverju barni svo það verði meira heillandi fyrir unga foreldra að koma heim. Grindavíkurbær á töluvert af húsnæði í bænum og hefur verið að koma því í útleigu, m.a. Víðihlíð sem eru íbúðir fyrir eldri borgara. Raunhæft íbúamarkmið, ef lausn verður fundin fljótlega með húsnæðismál, þá teljum við að við gætum verið komin ansi nálægt öðru þúsundinu í íbúfjölda að fjórum árum liðnum.

Samband við ríkisvaldið:
Hvernig ætlar þinn flokkur að tryggja að Grindavík fái réttláta meðferð og fjármagn frá ríkinu og hvar dregur þú línuna – hvenær er nóg komið af bið eftir ákvörðunum að ofan?

Grindavíkurnefndin lýkur störfum í lok maí en forsætisráðuneytið er í ráðningarferli á verkefnastjóra sem á að stýra samhæfingu mála af ríkisins hálfu. Við þurfum á kjörtímabilinu að vera í góðu samtali við ríkið og skiptir þá mestu að við njótum sanngirni og okkur verði treyst með okkar eigin almannavarnarnefnd til að stýra málum í Grindavík. Forræðishyggjan er of mikil eins og hún er núna. Grindvíkingar bera virðingu fyrir náttúruöflunum eins og sýndi sig 10. nóvember 2023. Það er talið að innan við 300 manns hafi verið eftir í bænum þegar kom að rýmingu. Við erum ekki að óska eftir neinni sérmeðferð þegar kemur að fjárveitingum frá ríkinu. Við þurfum að hafa slökkvilið á vakt allan sólarhringinn og kemur ríkið til móts við okkur þar sem við teljum eðlilegt á meðan óvissustig eða hættustig er í gangi.

Atvinnulíf og nýsköpun:
Hvernig ætlar þú að tryggja að Grindavík verði áfram eftirsóknarverður staður fyrir fyrirtæki og á þinn flokkur tillögu að nýrri atvinnusköpun sem getur dafnað samhliða sjávarútveginum við núverandi aðstæður?

Gott að fá spurningu sem inniheldur orðin „verði áfram eftirsóknarverður staður“. Það er akkúrat það sem Grindavík er, þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. Það eru miklir möguleikar tengdir ferðaþjónustu í bænum og ætlum við að leggja okkar af mörkum í uppbyggingunni að varðveita söguna um þessa atburði sem hafa verið að angra okkur síðustu ár svo það styrki ferðaþjónustu í Grindavík. Allar götur, garðar og lóðir hafa verið jarðskönnuð og eru varin með varnargörðum sem gerir bæinn okkar einn af öruggustu bæjum landsins. Það sjá þessi nýju fyrirtæki sem hafa bæst í hópinn á síðustu tveimur árum og erum við viss um að fyrirtæki munu áfram horfa til Grindavíkur sem eftirsóknarverðs staðar til fjárfestingar.

Aðalbros
Aðalbros
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar