Oddvitasætið: Leikskólamálin í forgangi
Sveitarfélagið Vogar stendur á krossgötum örrar fólksfjölgunar og krefjandi innviðauppbyggingar. Kristinn Björgvinsson, oddviti L-listans, segir listann leggja ríka áherslu á heiðarleika og raunsæi í aðdraganda kosninga. Í stað gylliboða leggur L-listinn áherslu á að klára brýnustu verkefnin, líkt og stækkun leikskóla og eflingu atvinnulífs, með hagsmuni íbúanna og sjálfbæran rekstur sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Hvað telur þú vera stærsta kosningamálið í Sveitarfélaginu Vogum og hvers vegna?
„Við teljum að álagningar á íbúa vegi þungt á kjósendum sem og áhyggjur af leik- og grunnskóla. Eins hefur verið mikið í umræðunni að fá verslun í bæinn en það er mál sem bæjarstjórn á erfitt með að stjórna enda ekki í hennar verkahring. Við höfum verið tilbúin að skapa aðstæður fyrir verslun en ekki fengið jákvæðar undirtektir þar sem flestar verslanir miða við meiri fólksfjölda til að það sé grundvöllur fyrir því að opna verslun.
Í þeirri öru fólksfjölgun sem hefur verið undanfarin ár hefur ekki verið unnið nógu markvisst að uppbyggingu innviða, samanber skóla og leikskóla, til að mæta þörf stækkandi samfélags, en þess má samt geta að þessi mál eru í vinnslu og á góðri leið og vonandi fáum við umboð frá kjósendum til að klára þau.“
Ef þú mættir aðeins nefna eitt mál sem þið mynduð keyra í gegn á fyrstu 100 dögunum – hvað er það og hvernig munu íbúarnir finna fyrir því?
„Það sem er brýnast í okkar huga er stækkun leikskóla og miðað við það plan sem við erum að setja upp í bæjarstjórn í dag ætti það að vera klárt í ágúst eða september og duga til að ekki verði biðlisti eftir leikskólaplássi næstu árin. Þá myndast svigrúm til að klára málið almennilega og koma þessum málaflokki í góðan farveg.“
Hvað er það sem skilur ykkar framboð skýrast frá hinum flokkunum í sveitarfélaginu í þessum kosningum?
„Við erum mjög jarðbundin sem er kannski ekki vinsælast þegar maður er að fara í framboð. Við höfum reynsluna af að vera í bæjarstjórn og höfum unnið vel með meirihlutanum þetta kjörtímabil. Það hefur gefið okkur að við höfum náð rúmlega fimmtíu prósent fram af því sem við lögðum upp með í síðustu kosningum. Það gefur okkur innsýn í stöðuna og hvað er í gangi innan stjórnsýslunnar. Þar af leiðandi erum við ekki að lofa einhverju sem við getum ekki staðið við. Við viljum reyna en til að það takist þarf margt að ganga upp, til að mynda að fá fyrirtæki og atvinnu inn í sveitarfélagið og auka tekjustofna, höfum við barist ötullega í því frá því listinn var stofnaður og er það ánægjulegt að aðrir listar hafi það einnig að markmiði. Við erum fólk samvinnu en ekki niðurrifs og veigrum okkur ekki við að hæla öðrum framboðum fyrir það sem vel er gert, en það er sjálfsagt léttara að ná kjöri með loforðum og gylliboðum en við erum ekki þar. Við viljum koma hreint fram og ná okkar markmiðum að verðleikum en ekki segja eitthvað sem ekki er hægt að standa við nema setja allt á hliðina í rekstri bæjarins.“
Vogar er sveitarfélag í örum vexti og íbúum fjölgar hratt. Hvernig ætlið þið að tryggja að innviðirnir haldi í við fjölgunina án þess að skuldsetja bæinn um of?
„Það er bara ekki víst að það sé hægt, en við erum ásamt meirihlutanum sennilega búin að kaupa okkur tíma með leikskólamálin í nokkur ár án mikillar skuldsetningar ef það gengur eftir. Þá hefst vinna við að fylgja því plani með stækkun grunnskóla sem starfshópur hefur skilað af sér en það er alveg ljóst að það mun kosta mikla fjármuni og skuldsetningu fyrir sveitarfélagið en hjá því verður ekki komist, því miður, vegna þess að það eru aðrir þættir sem má ekki stoppa, til að mynda viðhald gatna og fasteigna og almennt viðhald bæjarins innan sem utan, en ef okkar sýn gengur eftir með Keilisnes og aðra þætti í atvinnuuppbyggingu þá ætti að vera ljós við enda gangnanna og við ættum að geta unað vel sem íbúar Sveitarfélagsins Voga.“









