Oddvitasætið: Grindavík á að koma sterkari til baka
„Við ætlum ekki að setja fram tómar tölur eða loforð án innistæðu. Okkar markmið er skýrt: Að skapa þær aðstæður að fólk geti raunverulega valið að koma aftur heim,“ segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Grindavík. Í þessu viðtali fer Guðbjörg yfir mikilvægi þess að eyða óvissu íbúa með fastri eftirfylgni gagnvart ríkisvaldinu, forgangsröðun í þágu barna og öryggismála, og hvernig byggja megi upp fjölbreyttara atvinnulíf sem gerir Grindavík að eftirsóknarverðum stað til framtíðar.
Forgangsröðun í enduruppbyggingu og öryggi:
Ef fjárhagslegt svigrúm bæjarins verður takmarkað á næsta kjörtímabili, hvaða þrjá innviði eða þjónustuþætti mun þinn flokkur setja í algjöran forgang og hverju ertu tilbúinn að fresta?
Ef fjárhagslegt svigrúm verður takmarkað setjum við öryggi íbúa, grunnþjónustu og ábyrga fjármálastjórn í algjöran forgang. Öryggismálin verða alltaf númer eitt. Við viljum tryggja að almannavarnanefnd geti ráðið til sín sérfræðinga og að unnið verði lifandi áhættumat fyrir Grindavík sem er uppfært reglulega. Í öðru lagi verður skóla- og leikskólastarf í forgangi. Börn og fjölskyldur þurfa stöðugleika og við ætlum ekki að gefa afslátt af gæðum þjónustunnar. Í þriðja lagi viljum við verja íþrótta-, æskulýðs- og velferðarþjónustu, þar á meðal þjónustu við eldri borgara og fólk með fötlun. Við erum tilbúin að fresta verkefnum sem eru ekki brýn fyrir öryggi, grunnþjónustu eða endurkomu íbúa, en við viljum forgangsraða af skynsemi en ekki skera niður í blindni.
Framtíðarsýn og íbúafjöldi:
Hvert telur þinn flokkur að sé raunhæft íbúamarkmið fyrir Grindavík eftir fjögur ár og með hvaða beinu aðgerðum ætlið þið að styðja við þá sem vilja búa áfram í bænum eða flytja aftur heim?“
Raunhæft markmið er að Grindavík byggist upp aftur sem öflugt bæjarfélag þar sem sem flestir sem vilja koma heim hafi raunverulegan möguleika á því. Við viljum ekki setja fram tóma tölu án þess að að baki henni séu aðgerðir. Markmiðið á næstu fjórum árum er að skapa aðstæður fyrir fjölskyldur, ungt fólk, eldri borgara og fyrirtæki til að snúa aftur með meiri vissu.
Beinar aðgerðir eru skýrar: skóla- og leikskólahald í Grindavík, betri svör frá Þórkötlu um framtíð fasteigna, nýting á húsnæði í eigu bæjarins, öflugra íþrótta- og æskulýðsstarf og sterkari upplýsingagjöf til íbúa. Fólk þarf að geta skipulagt líf sitt og tekið ákvarðanir á grundvelli skýrra upplýsinga, ekki endalausrar óvissu.
Samband við ríkisvaldið:
Hvernig ætlar þinn flokkur að tryggja að Grindavík fái réttláta meðferð og fjármagn frá ríkinu og hvar dregur þú línuna – hvenær er nóg komið af bið eftir ákvörðunum að ofan?
Grindavík á rétt á sanngjarnri og skýrri meðferð frá ríkinu. Við ætlum að sækja fast það fjármagn og þann stuðning sem sveitarfélaginu ber í endurreisninni. Þetta snýst ekki um sérmeðferð, heldur réttlæti gagnvart bæjarfélagi sem hefur staðið frammi fyrir fordæmalausum aðstæðum.
Línan er dregin þegar biðin fer að skaða íbúa, fyrirtæki og rekstur bæjarins. Þá þarf sveitarfélagið að tala skýrt, setja pressu á stjórnvöld og krefjast svara. Það gengur ekki að Grindvíkingar sitji endalaust í óvissu um húsnæði, innviði, fasteignir og framtíð bæjarins. Við viljum samtal, en líka festu.
Atvinnulíf og nýsköpun:
Hvernig ætlar þú að tryggja að Grindavík verði áfram eftirsóknarverður staður fyrir fyrirtæki og á þinn flokkur tillögu að nýrri atvinnusköpun sem getur dafnað samhliða sjávarútveginum við núverandi aðstæður?
Grindavík verður áfram að vera eftirsóknarverður staður fyrir fyrirtæki. Til þess þarf örugga innviði, skýrari framtíðarsýn og raunverulegan stuðning við fyrirtæki sem vilja starfa og fjárfesta í bænum. Þar skiptir raforkuöryggi miklu máli, sem og aðgengi, skipulag og góð þjónusta sveitarfélagsins.
Sjávarútvegurinn verður áfram ein af lykilstoðum Grindavíkur, en við þurfum einnig að byggja fleiri stoðir undir atvinnulífið. Þar eru tækifæri í ferðaþjónustu, nýsköpun, þjónustu, upplifunartengdri starfsemi og verkefnum sem tengjast sérstöðu Grindavíkur. Bærinn á að styðja við Grindvíkinga með góðum hugmyndum, einfalda ferla og skapa umhverfi þar sem fólk þorir að byggja upp. Grindavík á ekki bara að komast aftur af stað, hún á að koma sterkari til baka.





