Oddvitasætið: Fjölskyldan og sjálfbær vöxtur í brennidepli
Sveitarfélagið Vogar hefur tekið miklum stökkbreytingum á síðustu árum og þar fer Birgir Örn Ólafsson, oddviti E-listans, fyrir framboði sem leggur áherslu á að vöxturinn megi ekki verða á kostnað fjárhagslegrar heilsu eða lífsgæða fjölskyldna. E-listinn, sem á sér langa sögu sem óháð afl í bænum, mætir til leiks með áherslu á að klára biðlista eftir leikskólaplássum og tryggja að þjónusta fylgi þeirri miklu íbúafjölgun sem hefur átt sér stað.
Hvað telur þú vera stærsta kosningamálið í Sveitarfélaginu Vogum og hvers vegna?
„Í forgangi hjá E-listanum og ofarlega í hugum íbúa er uppbygging í grunn- og leikskóla. Með eins mikilli uppbyggingu og íbúafjölgun og hefur verið undanfarin ár er fjölgun barna í skólum óhjákvæmileg. Hingað sækir fjölskyldufólk, m.a. vegna kyrrðar, nálægðar við náttúru og skóla sem hafa á sér gott orð. Því viljum við viðhalda. Uppbygging verslunar og þjónustu í Vogum er einnig á dagskrá en uppbygging á miðbæjarreitnum er nú þegar til skoðunar með byggingaraðila sem er með starfsemi í sveitarfélaginu. Að í Vogum sé sú þjónusta sem íbúar þurfa nauðsynlega á að halda er í nærtíma mikilvægt kosningamál.
Til að styðja við þetta þarf að leggja mikla áherslu á atvinnumálin þar sem þau hafa bein áhrif á tekjumyndun sveitarfélagsins og munu styrkja fjárhagslega sjálfbærni og sjálfstæði sveitarfélagsins til framtíðar. Á kjörtímabilinu var hrint af stað hugmyndum að uppbyggingu á Keilisnesi (www.keilisnes.is). Unnið verður áfram með þær hugmyndir í samráði við íbúa sveitarfélagsins.“
Ef þú mættir aðeins nefna eitt mál sem þið mynduð keyra í gegn á fyrstu 100 dögunum – hvað er það og hvernig munu íbúarnir finna fyrir því?
„Það sem er mest aðkallandi er að fjölga plássum í leikskólanum. Við munum því einbeita okkur að því að keyra í gegn fyrir haustið færanlegar kennslustofur við leikskólann til að mæta fjölgun barna og eyða biðlistum. Á kjörtímabilinu verður svo hafist handa við þarfagreiningu og hönnun á nýjum leikskóla í Grænubyggð. Við tökum yngstu íbúana og fjölskyldur þeirra alvarlega og viljum gera vel við þennan hóp íbúa með aðstöðu sem er til fyrirmyndar og styður við og styrkir nám barnanna og bætir aðstöðu kennara.“
Hvað er það sem skilur ykkar framboð skýrast frá hinum flokkunum í sveitarfélaginu í þessum kosningum?
„E-listinn er fjölskyldu- og velferðarframboð með ábyrgan rekstur og fjármálastjórnun að leiðarljósi. Við höfum enga beina tengingu við stjórnmálaöfl á landsvísu eða hagsmunafélög í landinu heldur vinnum að velferð Voga og íbúa þess á samfélagslegum grunni. Stefna E-listans byggir á og tekur mið af sjálfbærni, jafnrétti og lýðheilsu. Við leggjum áherslu á að ólíkar raddir fái hljómgrunn.
Við erum eitt af fáum framboðum á landinu sem komum á gjaldfrjálsum skólamáltíðum og höfum haft hagsmuni fjölskyldna og barna að leiðarljósi allt frá stofnun árið 2006. Við komum einnig á frístundastyrkjum fyrir bæði börn og eldri borgara sem komu í kjölfar gjaldfrjálsra skólamáltíða. Samstarfssamningum við íþróttafélög og önnur félagasamtök var einnig komið á fót í stjórnartíð E-listans. Hann hefur þróast í gegnum árin og er undirstaða öflugs samstarfs þessara félaga og sveitarfélagsins. Við leggjum áherslu á varfærni í rekstri, að sveitarfélagið sé rekið með ábyrgum hætti en ekki eftir áherslum utanaðkomandi aðila.“
Vogar er sveitarfélag í örum vexti og íbúum fjölgar hratt; hvernig ætlið þið að tryggja að innviðirnir haldi í við fjölgunina án þess að skuldsetja bæinn um of?
„E-listinn vinnur eftir skýrri markmiðasetningu sem hófst á því kjörtímabili sem nú er að renna sitt skeið. Við munum tryggja uppbyggingu innviða með skýrri forgangsröðun og áfangaskiptingu verkefna, hver svo sem þau eru. Við munum koma á forvirku viðhaldi til að lenda ekki í ótímabærri viðhaldsþörf. Við höfum hagrætt í rekstrinum og snúið honum við, úr neikvæðri rekstrarniðurstöðu í jákvæða. Skuldahlutfall er lágt og því tækifæri til nauðsynlegra fjárfestinga sem fylgja uppbyggingunni. Ljóst er að allar stærri framkvæmdir kalla á lánsfé og því er mikilvægt að forgangsröðun sé skýr, uppbyggingarhraði með þeim hætti að sveitarfélagið ráði sem best við afborganir lána og að innviðir haldi í við uppbygginguna. Vextir eru með því hæsta sem við þekkjum í dag og mikilvægt að gæta aðhalds um leið og fjárfest er til framtíðar.“








