Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Oddvitar ræða atvinnumál á opnum fundi í Virkjun
Þriðjudagur 18. maí 2010 kl. 13:23

Oddvitar ræða atvinnumál á opnum fundi í Virkjun

Oddvitar framboðslistana fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar hafa allir boðað komu sína á fund um atvinnumál í Reykjanesbæ, sem haldinn verður í Virkjun að Ásbrú, fimmtudaginn 20. maí kl 17:30. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í fyrirspurnum. Fundarstjóri verður Ellert Eiríksson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Virkjun-virknimiðstöð boðar til fundar þar sem rætt verður um framtíðarhorfur í atvinnumálum hér í Reykjanesbæ. Mál sem okkur öllum er mjög hugleikið nú á tímum þegar tæp 15% atvinnuleysi er á Suðurnesjum, en trúum því og treystum að úr rætist, segir í fundarboði frá Virkjun.

Frummælendur verða oddvitar framaboðslistanna í Reykjanesbæ: Árni Sigfússon Sjálfstæðisflokki, Friðjón Einarsson Samfylkingunni, Gunnar Marel Eggertsson Vinstrihreyfingunni grænt framboð, Kristinn Þór Jakobsson Framsóknarflokki og einn fulltrúi frá atvinnuleitendum.


Hver frummælandi hefur 7 mínútur til að kynna áherslur þeirra í atvinnumálum. Eftir kynningar frambjóðenda verða leyfðar spurningar og umræður. Nú er tækifæri til að hlýða á og spyrja þá sem bjóða sig fram til að stjórna bænum næstu misserin.


Allir hjartanlega velkomnir í Virkjun – virknimiðstöð.