Laugardagur 23. febrúar 2002 kl. 16:45
Oddur V. Gíslason leitar skipverja sem er saknað

Einn skipverjanna þriggja sem björguðust úr bátnum Bjarma VE, sem sökk um 10 mílur vestan við Dranga við Vestmannaeyjar, er látinn. Hinir tveir eru illa kaldir og eru í aðhlynningu á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum. Leit stendur enn yfir að fjórða skipverjanum. Báturinn var á leið til Grindavíkur. Björgunarskipið Oddur V. Gíslason tekur nú þátt í leit að skipverja sem er saknað en fjöldi skipa tekur þátt í leitinni ásamt þyrlum frá Landhelgisgæzlunni og Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Þegar þyrlan TF-SIF kom á slysstað hengu tveir skipverjar í henglum gúmmíbjörgunarbáts sem virðist hafa skemmst þegar báturinn sökk. Einn skipverjanna svamlaði um í sjónum, ekkert sást til þess fjórða. Mennirnir voru illa haldnir af völdum ofkælingar þegar þeim var bjargað um borð í þyrluna.