Oddný tilkynnir framboð í varaformann
Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, og fyrrum fjármálaráðherra hefur tilkynnt framboð sitt í varaformann Samfylkingarinnar.
Oddný tilkynnti þetta á stefnuþingi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í gær og svo skömmu síðar á Facebook síðu sinni. Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram 1.-3. febrúar næstkomandi.
Aðeins Oddný hefur til þessa tilkynnt framboð sitt í varaformann. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður í Suðvesturkjördæmi, er sögð að vera íhuga framboð í varaformann og einnig þær Ólína Þorvarðardóttir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir. Dagur B. Eggertsson er núverandi varaformaður Samfylkingarinnar en hyggst ekki bjóða sig fram að nýju.
[email protected]