Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Fréttir

Oddný opnar kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 31. október 2012 kl. 12:29

Oddný opnar kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ

Oddný Harðardóttir alþingismaður og þingsflokksformaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti í forvali flokksins fyrir Suðurkjördæmi sem fram fer 16. og 17. nóvember.

Oddný hefur tekið að sér mörg krefjandi ábyrgðarstörf á kjörtímabilinu. Hún varð fjármálaráðherra fyrst kvenna og var formaður menntamála- og fjárlaganefndar.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Oddný starfar með hag barna að leiðarljósi og leggur áherslu á ábyrga hagstjórn, atvinnumál, nýsköpun og fjölbreytt framboð náms. Hún tekst á við verkin af heiðarleika, yfirvegun og festu og vinnur að almannahag af dugnaði og hugsjón.

Oddný opnar kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ að Hafnargötu 31, 2. hæð föstudaginn 2. nóvember kl. 17:00 og eru allir velkomnir. Létt dagskrá og léttar  veitingar verða í boði.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25