Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Oddný leiðir Samfylkingu í Suðurkjördæmi
F.v.: Inger, Guðný, Viktor, Oddný og Friðjón, fimm efstu á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Fimmtudagur 15. apríl 2021 kl. 09:53

Oddný leiðir Samfylkingu í Suðurkjördæmi

Oddný Harðardóttir, alþingismaður leiðir framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 en listinn var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í gærkvöld.

Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, þingflokksformaður og fyrrverandi fjármálaráðherra leiðir listann, í öðru sæti er Viktor Stefán Pálsson, sviðsstjóri hjá Matvælastofnun og formaður Ungmennafélags Selfoss, þriðja sætið skipar Guðný Birna Guðmundsdóttir hjúkrunarstjóri heimahjúkrunar hjá Reykjavíkurborg, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hjúkrunarfræðingur og MBA nemi, í fjórða sæti er svo Inger Erla Thomsen stjórnmálafræðinemi úr Grímsnesinu og fimmta sætið skipar formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ Friðjón Einarsson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Oddný Harðardóttir: „Ég leiði lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi með stolti inn í þessar kosningar, þetta er öflugur hópur. Það eru fjölmörg tækifæri framundan í uppbyggingu eftir heimsfaraldur og sýn okkar er skýr í þeim efnum. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir hafa brugðist og ekki staðið með fólkinu í kjördæminu sem bera þyngstu byrðarnar í heimsfaraldrinum. Nú þurfum við allar hendur á dekk svo ný ríkisstjórn eftir kosningar verði leidd af jafnaðarmönnum.”

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

1. Oddný G. Harðardóttir, Suðurnesjabær - Þingmaður Samfylkingarinnar, þingflokksformaður, kennari, fyrrverandi bæjarstjóri í Garði og fyrrverandi fjármálaráðherra.

2. Viktor Stefán Pálsson, Árborg - Sviðsstjóri hjá Matvælastofnun og formaður Ungmennafélags Selfoss

3. Guðný Birna Guðmundsdóttir, Reykjanesbær - Hjúkrunarstjóri heimahjúkrunar hjá Reykjavíkurborg, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hjúkrunarfræðingur og MBA nemi

4. Inger Erla Thomsen, Grímsnes - Stjórnmálafræðinemi

5. Friðjón Einarsson, Reykjanesbær - Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar

6. Anton Örn Eggertsson, Vestmannaeyjar - Meðeigandi í Pítsugerðinni og yfirkokkur hjá veitingastaðnum Gott

7. Margrét Sturlaugsdóttir, Reykjanesbær - Atvinnulaus fyrrverandi flugfreyja Icelandair

8. Davíð Kristjánsson, Árborg - Vélvirki hjá Veitum

9. Siggeir Fannar Ævarsson, Grindavik - Framkvæmdastjóri

10. Elín Björg Jónsdóttir, Þorlákshöfn - Fyrrverandi formaður BSRB

11. Óðinn Hilmisson, Vogar - Húsasmíðameistari, kennaranám iðnmeistara, tónlistarmaður og rithöfundur

12. Guðrún Ingimundardóttir, Höfn í Hornafirði - Vinnur við umönnun og er eftirlaunaþegi

13. Hrafn Óskar Oddsson, Vestmannaeyjar - Sjómaður

14. Hildur Tryggvadóttir, Hvolsvelli - Sjúkraliði og nemi í Leikskólafræði við Háskóla Ísland

15. Fríða Stefánsdóttir, Suðurnesjabær - Formaður bæjarráðs í Suðurnesjabæ og deildarstjóri í Sandgerðisskóla

16. Hafþór Ingi Ragnarsson, Hrunamannahreppi - 6. árs læknanemi og aðstoðarlæknir á bráðamóttöku HSu

17. Sigurrós Antonsdóttir, Reykjanesbær - Hársnyrtimeistari, atvinnurekandi og kennari

18. Gunnar Karl Ólafsson, Árborg - Sérfræðingur á kjarasviði hjá Báran, stéttarfélag

19. Soffía Sigurðardóttir, Árborg - Markþjálfi

20. Eyjólfur Eysteinsson, Reykjanesbær - Formaður Öldungaráðs Suðurnesja og fyrrv. útsölustjóri ÁTVR