Oddný fær aðstoðarmann

Gunnar Tryggvason verkfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármálaráðherra.
Gunnar er með B.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands, Dipl.Ing gráðu í raforkuverkfræði  frá Háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi og Diplomagráðu í viðskipta- og rekstrarfræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.
Gunnar hefur undanfarin tvö ár starfað sem sérfræðingur hjá KPMG á sviði orkuiðnaðar.
Hann lætur af störfum hjá KPMG á meðan hann gegnir starfi aðstoðarmanns fjármálaráðherra. Gunnar hefur níu ára starfsreynslu af störfum á fjármálamarkaði, en hann starfaði áður hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Investum. Að auki hefur Gunnar sjö ára starfsreynslu sem verkfræðingur í áliðnaði.
Gunnar er kvæntur Úlfhildi Leifsdóttur tannlækni og eiga þau sex börn.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				