Bygg
Bygg

Fréttir

Nýtt tjaldstæði opnað í Vogum
Fimmtudagur 28. júní 2012 kl. 12:10

Nýtt tjaldstæði opnað í Vogum

Sveitarfélagið Vogar hefur tekið í notkun nýtt tjaldstæði í nágrenni íþróttamiðstöðvarinnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Tjaldstæðið verður á grasflötinni þar sem áður var knattspyrnuvöllur sveitarfélagsins. Búið er að koma upp litlu aðstöðuhúsi með vatnssalerni og uppþvottaaðstöðu, sem verður til afnota fyrir gesti tjaldstæðisins. Utan á aðstöðuhúsinu eru jafnframt rafmagnstenglar til notkunar fyrir gesti tjaldstæðisins, einkum þá sem eru á húsbílum, húsvögnum og fellihýsum. Ekkert gjald verður innheimt fyrir afnot af tjaldstæðinu fyrst um sinn.

Sveitarfélagið Vogar býður ferðamenn velkomna á tjaldstæðið og vonar að þeir njóti dvalarinnar.