Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nýtt sveitarfélag má ekki heita Sandgerði eða Garður
Föstudagur 2. febrúar 2018 kl. 09:42

Nýtt sveitarfélag má ekki heita Sandgerði eða Garður

Í kjölfar ákvörðunar um sameiningu Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar liggur fyrir að velja nafn hins nýja sveitarfélags. Skipuð hefur verið nafnanefnd sem kallar eftir tillögum að nafni fyrir nýja sveitarfélagið. Nefndin mun velja nöfn úr tillögunum og senda Örnefnanefnd til umsagnar. Öllum er frjálst að senda inn tillögur, segir í tilkynningu frá nafnanefnd sveitarfélaganna
 
Um miðjan mars mun fara fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar um nafn hins sameinaða sveitarfélags. Valið mun standa á milli 3-5 tillagna sem hlotið hafa jákvæða umsögn Örnefnanefndar. Atkvæðagreiðslan verður leiðbeinandi en ekki bindandi. Nafn hins sameinaða sveitarfélags verður staðfest af nýrri sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags sem kjörin verður 26. maí næstkomandi.
 
Samkvæmt lögum skal nafnið samrýmast íslenskri málfræði og málvenju og tengjast viðkomandi svæði sérstaklega. Æskilegt er að nafn sveitarfélagsins beri með sér að um stjórnsýslueininguna sveitarfélag sé að ræða, þ.e. að heiti sveitarfélagsins endi til dæmis á, -bær, – kaupstaður, -byggð, -þing eða að Sveitarfélagið sé skeytt framan við nafnið. 
 
Tekið er fram að ekki er verið að horfa til núverandi stjórnsýsluheita sveitarfélaganna eða tilvísunar í þau. Nöfnin Sandgerði og Garður verða áfram notuð um byggðakjarnana og koma ekki til álita sem nöfn á hið nýja sveitarfélag.
 
Hægt er að skila tillögum á bæjarskrifstofur sveitarfélaganna, eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] eða [email protected]
 
Til að gæta hlutleysis hefur nefndin ákveðið að fara fram á að tillögur njóti nafnleyndar þar til nafn hefur verið valið. Það skal gert á þann hátt að tillaga að nafni, ásamt nafni og heimilisfangi höfundar, skal sett í umslag og því lokað. Utan á umslagið skal á ný skrifa tillöguna að nafni sveitarfélagsins. Umslaginu skal komið á bæjarskrifstofu og það merkt „Nafn sameinaðs sveitarfélags“. Starfsmaður nefndarinnar mun afmá nöfn af þeim tillögum sem berast rafrænt, til að tryggja nafnleynd höfundar. Skilafrestur er til kl. 12:00 þann 12. febrúar 2018.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024