Nýtt stálþil í Grindavík fyrir 67 milljónir króna
Hafnarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt að taka tilboði Hagtaks í gerð stálþils vestan Miðgarðs í Grindavíkurhöfn. Tilboðið hljóðaði upp á rétt rúmar 67 milljónir króna.
Tvö önnur tilboð bárust í verkið, annað frá Guðlaugi Einarssyni ehf. upp á tæpar 67 milljónir og síðan tilboð upp á 92 milljónir frá Ístaki. Guðlaugur dró hins vegar tilboð sitt til baka og því hefur hafnarstjórn vísað því til bæjarstjórnar að tilboði Hagtaks verði tekið.
Mynd: horft yfir byggðina og höfnina í Grindavík. Ljósmynd: Þorsteinn Gunnar Kristjánsson