Nýtt og endurbætt leiðakerfi strætó í Reykjanesbæ tekið í gagnið
Nýtt og endurbætt leiðakerfi strætó í Reykjanesbævar formlega tekið í notkun í morgun.
Það voru formaður nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja og formaður félags eldri borgara sem fóru í fyrstu ferð í morgun ásamt bæjarstjóra Árna Sigfússyni og Böðvari Jónssyni formanni bæjarráðs.
Nýja leiðakerfið miðar að því að bæta þjónustu og auka þægindi fyrir farþega í bæjarfélagin en eldra leiðarkerfi var sprungið, bæði í tíma og lengd leiða, enda hefur bærinn stækkað óðfluga síðastliðin ár og er nú orðinn 10 km langur. Nýjasta viðbótin er Vallarheiði, fyrrum varnarliðssvæðið, en þar eru íbúar nú orðnir samtals 1700, og fjölgar ört.
Við gerð nýja leiðarkerfisins var tekið mið af því að auka þjónustu við nemendur og eldri borgara. Áhersla er lögð á að þjóna hverju skólahverfi og taka um leið mið af lykilþjónustu í bæjarfélaginu. Þar má nefna stofnanir s.s. skóla, íþróttahús, sjúkahús, banka, Vatnaveröld, Nesvelli og verslanir.
Sett hefur verið upp miðlæg skiptistöð við Reykjaneshöll þar sem að allir vagnar stoppa á heila tímanum og auðveldar það farþegum að sækja þjónustu í önnur hverfi. Stoppistöðum hefur verið fjölgað og eins hefur ein leið bæst við leiðarkerfið sem samanstendur af: Leið 1-Keflavíkurleið, Leið 2 - Njarðvíkurleið, Leið 3 - Vallarheiði og Leið 3a - Hafnir/Vallarheiði.
Allar stoppistöðvar hafa nú fengið nafn og við þær hefur verið sett upp vandað kort af leiðarkerfi ásamt öllum upplýsingum. Að auki hefur biðskýlum verið fjölgað og merkingar bættar.
Það er frítt í strætó í Reykjanesbæ fyrir alla íbúa.
Íbúar eru hvattir til þess að ganga vel um biðskýlin og stoppistöðvarnar. Allar góðar ábendingar um strætó má senda inn á íbúavefinn mittreykjanes.is eða á netfangið [email protected].