Bygg
Bygg

Fréttir

Nýtt nám í orkutæknifræði og mekatróník á vegum Háskóla Íslands og Keilis
Föstudagur 9. janúar 2009 kl. 11:19

Nýtt nám í orkutæknifræði og mekatróník á vegum Háskóla Íslands og Keilis




Kennsla hefst í lok mánaðarins í tæknifræði við Háskóla Íslands í fyrsta sinn og er námið samstarfsverkefni HÍ og Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Nemendur verða skráðir við HÍ og munu útskrifast þaðan, en námið fer fram hjá Keili á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Fyrst um sinn verður boðið upp á tvær brautir: orkutæknifræði og mekatróník. Sérstök áhersla verður lögð á gæði námsins með takmarkaðri inntöku, persónulegri kennslu og verklegu námi í vel búnum tilraunastofum en samhliða náminu verður byggð upp fyrsta flokks rannsóknaaðstaða á staðnum. Umsóknafrestur er til 20. janúar og nánari upplýsingar er að finna á www.keilir.net.

Orkutæknifræði er þverfaglegt nám þar sem veittur er sterkur grunnur í undirstöðu orkugreinum og í því að nýta bæði rafeinda- og hugbúnað til að stjórna vélbúnaði, og notkun mælitækja.  Að auki verður veittur grunnur í borholutækni og orkutengdum jarðvísindum.

Breið undirstaða verður veitt í nýtingu jarðvarma, orkuvinnslu, orkuumbreytingu og dreifingu. Einnig verður kennt hvernig á að hanna vélhluti, velja efni m.t.t. tæringar, slits og þreytu. Auk þess verður nemendum kennd rafmagnsfræði, viðhaldstjórnun, rekstrarfræði, áhrif umhverfisþátta ásamt fleiri fögum sem eru mikilvæg í starfi orkutæknifræðinga.

Nám í mekatrónískri tæknifræði er þverfaglegt nám þar sem veittur er sterkur grunnur í aðferðum sem nýta bæði rafeinda- og hugbúnað til að stjórna vélbúnaði. Undanfarin ár hefur verið vaxandi þörf fyrir tæknimenntað starfsfólk sem getur bæði hannað og viðhaldið vélbúnaði búnum rafeinda- og hugbúnaðarstýringum.

Meðal þess sem kennt verður má nefna: mælitækni til þess að ná upplýsingum úr umhverfinu, merkjavinnsla til að vinna úr upplýsingunum og stýritækni til að bregðast við upplýsingunum. Einnig verður kennt hvernig á að hanna vélhluti, velja efni m.t.t. tæringar, slits og þreytu.  Auk þess verður kennd rafmagnsfræði, rafeindafræði og önnur fög sem eru mikilvæg í starfi tæknifræðinga með sérhæfingu í mekkatróník.

Bílakjarninn
Bílakjarninn