Bygg
Bygg

Fréttir

Nýtt nafn ekki á dagskrá
Bæjarstjórn Garðs og Sandgerðis hefur ekki ennþá sett nafnamálið á dagskrá.
Þriðjudagur 3. júlí 2018 kl. 10:37

Nýtt nafn ekki á dagskrá

Enn er óljóst hvert nafnið á sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis verður. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í maí var gerð könnun á meðal íbúa sameinaðs sveitarfélags þar sem þeir fengu að velja á milli nafnanna Heiðarbyggð og Suðurbyggð, ásamt því að skila auðu. Nafnið Heiðarbyggð hlaut fleiri atkvæði en Suðurbyggð en flestir skiluðu auðu. Það átti svo að vera hlutskipti nýrrar bæjarstjórnar að taka ákörðun í nafnamálinu.
 
Nú hefur ný bæjarstjórn komið saman einu sinni og nafnamálið er ekki á dagskrá annars fundar bæjarstjórnar nú í vikunni.
 
„Við erum bara á fullu í praktísku málunum núna,“ segir Róbert Ragnarsson, starfandi bæjarsjóri í sameinuðu sveitarfélagi.
Bílakjarninn
Bílakjarninn