Nýtt merki Suðurnesjabæjar frumsýnt
Í desember í fyrra var endanlega staðfest að sameinað sveitarfélag Sandgerðis og Garðs myndi fá nafnið Suðurnesjabær, en nafnið varð hlutskarpast í könnun meðal íbúa og hlaut samþykki Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins frá og með 1. janúar 2019. Næsta verkefni var síðan að hanna bæjarmerki fyrir hinn nýnefnda bæ.
Bjarki Lúðvíksson, grafískur hönnuður hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu, var fenginn til verksins. Niðurstaða hans var að byggja merkið á tengslum bæjarins við hafið. Á því má sjá skip búið seglum bera við sjóndeildarhringinn. Samhverfan í línum skipsins og öldum hafsins undir vísa í sameininguna. Skipið sjálft er hvítt, en grunnliturinn blár, litur himins og hafs. Einnig eru til útfærslur með dökkum línum og ljósum bakgrunni þar sem aðstæður eða tilefni kalla á slíka útfærslu.
„Við erum hæstánægð með útkomuna,“ segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar um merkið á vef Suðurnesjabæjar. „Þetta er stílhreint merki með nútímalegum blæ en sker sig heldur ekki um of úr öðrum bæjarmerkum og myndefnið er viðeigandi fyrir staðsetningu, atvinnuhætti og menningu Suðurnesjabæjar.“