HSS
HSS

Fréttir

Nýtt lan í Keflavík
Miðvikudagur 2. mars 2005 kl. 17:19

Nýtt lan í Keflavík

Alllangt er siðan Lan-setur var síðast starfrækt í Reykjanesbæ, en tveir ungir athafnamenn hafa ákveðið að ráða bót á því og opna Lan.is að Hafnargötu 44 á morgun.

Þeir Ingvar Rúnarsson og Josef Meekosha sneru nýlega aftur til landsins eftir nám í Bandaríkjunum og ákváðu fljótlega að stofna stað þar sem tölvuleikjaiðkendur gætu komið saman og leikið sér. Telja þeir að áhugi fyrir slíku sé mikill í bænum enda hafi spurningum rignt yfir þá siðustu daga þar sem fólk vill vita hvenær staðurinn opnar.
„Við erum með 14 nýjar tölvur og hér verður hægt að spila alla þessa helstu leiki eins og Battlefield, Counterstrike, gamla Counterstrike, Half life 2, Call of Duty, Eve online og fleiri. Við erum líka með tölvuverkstæði þar sem vð bjóðum upp á viðgerðir, uppfærslur og uppsetningu á tölvum auk vefsíðugerðar," segja félagarnir sem vonast til að staðurinn geti opnað á morgun, en þeir hafa hingað til beðið eftir leyfum frá bæjaryfirvöldum.

„Við erum bara spenntir fyrir að opna og okkur er farið að kitla í puttana með að byrja," segja félagarnir að lokum.

 

VF-Mynd/Þorgils.  Myndin er af Ingvari og Josef á Lan.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn