Bygg
Bygg

Fréttir

Nýtt glæsilegt tölvuver í Sandgerðisskóla
Fimmtudagur 24. nóvember 2005 kl. 14:08

Nýtt glæsilegt tölvuver í Sandgerðisskóla

Mikið var um dýrðir í Sandgerði á föstudag þegar þemadögum í Sandgerðisskóla lauk með stórhátíð og formlegri opnun nýs tölvuvers og nýrrar heimasíðu skólans.

Húsnæði skólans var fullt út úr dyrum þar sem nemendur og foreldrar komu til að horfa á skemmtiatriði sem krakkarnir stóðu fyrir. Meðal annars léku nemendur Tónlistarskólans og sungu lög úr ævintýrum, en þemavikan bar einmitt yfirskriftina Þjóðsögur og ævintýri. Auk þess var afrakstur þemavikunnar til sýnis um allan skólann.

Fyrirkomulag verkefnavinnunnar var þannig að átján hópar, sem innihéldu allir a.m.k. einn meðlim úr hverri bekkjardeild unnu að fjölbreyttum verkefnum alla vikuna og reyndist það afar vel.

Nýja tölvuverið, er búið 21 HP-tölvu af nýjustu og bestu gerð, en tölvurnar eru hluti af samningi Sandgerðisbæjar við Opin Kerfi um leigu á tölvubúnaði. Með þessu er Sandgerðisskóli orðinn afar vel búinn á þessu sviði þar sem tölvurnar sem voru fyrir verða sendar í yfirfærslu og komið fyrir í skólastofum. Ekki er vanþörf á slíkri bragarbót í þessum málum því allir bekkir eru í tölvunámi auk þess sem boðið er upp á valtíma í tölvum fyrir nemendur í 9. og 10. bekk.

Þær Hanna Margrét Jónsdóttir og Júlía Rut Sigurbjörnsdóttir í 1. bekk og Alexandra Jónsdóttir í 6. bekk opnuðu nýju vefsíðuna, www.sandgerðisskoli.is, saman en þær áttu allar afmæli á hátíðisdaginn. Síðan er hönnuð af DaCoda í Reykjanesbæ og má finna þar helsta fróðleik og staðreyndir um skólann. Auk þess eru þar fréttir og myndir úr skólalífinu og tengill yfir á mentor.is þar sem foreldrar geta nálgast enn meiri upplýsingar um skólann og námsframvindu barna sinna.

Pétur Brynjarsson, skólastjóri, sagði í samtali við Víkurfréttir nýja aðstaðan ætti eftir að vera bylting í skólastarfinu, sem og heimasíðan þar sem þess konar vefir væru sífellt að verða mikilvægari samskiptatæki á milli kennara og foreldra.

Bílakjarninn
Bílakjarninn