Bygg
Bygg

Fréttir

Nýtt gervigras í Nettóhöllina
Fulltrúar knattspyrnudeilda Njarðvíkur og Keflavíkur voru viðstaddir undirskriftina. VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
sunnudaginn 1. desember 2024 kl. 06:52

Nýtt gervigras í Nettóhöllina

Hafist verður handa við að leggja nýtt gervigras í Nettóhöllinni þann 9. desember næstkomandi en núverandi gervigras er komið til ára sinna og þarfnast endurnýjunar.

Síðastliðinn föstudag undirrituðu Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, starfandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Ármann Andri Einarsson, fulltrúi Metatron, samning um kaup Reykjanesbæjar á nýju gervigrasi í Nettóhöllina að viðstöddum fulltrúum frá Reykjanesbæ og knattspyrnudeildum Keflavíkur og Njarðvíkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Ármann Andri Einarsson og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir undirrita og handsala samninginn.

Gert er ráð fyrir að verkið hefjist 9. desember nk. og ljúki 11. janúar 2025, þ.a.l. verður höllin lokuð á meðan vinna stendur yfir.

Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar, sagði nokkur orð við tilefnið.