Nýtt deiliskipulag fyrir Gróf kynnt í dag
- stækkun smábátahafnarinnar, byggingu hótels, verslunar og annarrar þjónustu á miðsvæði.
Kynning á deiliskipulagstillögu af Grófinni og á Bergi í Reykjanesbæ verður haldin í Bíósal Duushúsa í dag, fimmtudaginn 13. febrúar kl. 17.
Höfundur kynnir tillöguna, sem fellst m.a í stækkun smábátahafnarinnar, byggingu hótels, verslunar og annarrar þjónustu á miðsvæði. Einnig er gert ráð fyrir styrkingu byggðar á Berginu.
Tillagan er aðgengileg á vef Reykjanesbæjar frá og með 14. febrúar og er gefinn frestur til 7. mars til að koma með ábendingar og athugasemdir sem sendist á Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ eða á netfangið [email protected].