Nýtt bryggjuhverfi í Reykjanesbæ
Reykjanesbær og Reykjanes Investment ehf. undirrituðu fyrir jól kaupsamning vegna Grófarinnar 2 í Reykjanesbæ og samstarfs- og þróunarsamning vegna nærliggjandi lóða.
Reykjanesbær auglýsti þróunarreit, byggingar- og lóðarréttindi á svæðinu til sölu árið 2021 og samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar tilboð félagsins þann 30. desember sama ár. Reykjanes Investment fyrirhugar að skipuleggja og byggja upp íbúabyggð blandað við verslun og þjónustu. Hún á að taka mið af nærliggjandi starfsemi, framþróun menningar- og ferðaþjónustu á svæðinu auk einstakrar staðsetningar og nálægð við smábátahöfnina í Gróf og menningar- og safnahúsin á svæðinu.
Hugmyndir félagsins, sem má sjá á meðfylgjandi myndum, eru unnar í samvinnu við Nordic - Office of Architecture.