Nýráðinn þyrluflugmaður gæslunnar úr Keflavík
Þórarinn Ingason þyrluflugmaður úr Keflavík hefur verið ráðinn sem þyrluflugmaður í flugdeild Landhelgisgæslunnar, en alls sóttu 15 manns um starfið. Alls eru 10 þyrluflugmenn starfandi hjá flugdeild Landhelgisgæslunnar.
Þórarinn hóf þjálfun sína sl. mánudag og á sunnudaginn heldur hann til Frakklands í þjálfunarbúðir þar sem hann mun dvelja næstu 3 vikurnar. Þórarinn sagði í samtali við Víkurfréttir að hann væri mjög ánægður með nýja starfið. „Þetta er náttúrulega draumastarfið og ég er mjög ánægður. Ég verð í 3 vikur í Frakklandi í þjálfun, kem síðan heim og fer aftur út í framhaldinu. Ég á að verða tilbúinn á þyrlurnar í maí,“ sagði Þórarinn.
Tvær þyrlur eru í flugdeild Landhelgisgæslunnar, TF-Líf og TF-Sif.
VF-ljósmynd/Hilmar Bragi.