Nýr vegur frá Reykjanesbraut niður á Njarðarbraut í undirbúningi
Miklar umbætur eru fyrirhugaðar á samgöngum í Reykjanesbæ með lagningu nýs vegar niður af Reykjanesbraut ofan Nikkelsvæðisins og niður að Njarðarbraut.
Lega nýja vegarins, Borgarbrautar, verður nokkurn vegin þar sem Flugvallarvegurinn er í dag og verða á honum fimm hringtorg sem verða kenndar við ýmsar heimsborgir. Um verður að ræða annan af tveimur aðalinnkomustöðum í bæinn, en hinn verður við verksmiðju Kaffitárs á Fitjum.
Að sögn Steinþórs Jónssonar, formanns Umhverfis- og skipulagsnefndar Reykjanesbæjar varð hugmyndin til í samstarfi starfsmanna bæjarins og Vegagerðarinnar.
Er gert ráð fyrir að framkvæmdirnar kosti 280 milljónir króns sem Reykjanesbær mun leggja út í fyrstu en fá svo endurgreitt frá Vegagerðinni þegar hún fær fjárveitingu.
„Við grípum til þess að fjármagna framkvæmdina sjálfir til að framkvæmdir geti hafist sem fyrst,“ segir Steinþór. „Á svæðinu milli Keflavíkur og Njarðvíkur hafa verið miklar framkvæmdir í gangi við þetta svæði þar sem Íþróttaakademían og Kentucky Fried Chicken veitingastaðurinn eru að rísa og svo er Reykjaneshöllin þar auðvitað fyrir.“
Þar að auki er væntanlegt Hlíðahverfi við veginn sem og fyrirhugaður aðalíþróttaleikvangur Reykjanesbæjar.
„Þannig þurfum við að hafa hraðar hendur, en hins vegar er ljóst að við förum ekki út í fjárfestingar fyrr en verkið er komið á vegaáætlun.“
Borgabraut er unninn með fyrirhugað flugþjónustusvæði ofan við Iðavelli á milli Borgabrautar og Aðalgötu í huga. Á svæði Samgöngumiðstöðvar Íslands, eins og er ráðgert að hún heiti, mun verða ýmis þjónusta í sambandi við alþjóðaflugvöllinn, ss. bílaleigur, bílastæði, veitingastaðir og bókunarþjónusta.
Steinþór segir að þótt kostnaðurinn sé mikill séu framkvæmdirnar nauðsynlegar. „Sterk eignastaða bæjarins gerir okkur kleift að skapa tækifæri til að fá fleira fólk til bæjarins og styrkja uppbyggingu í atvinnurekstri.“
Vonir standa til þess að hægt verði að ráðast í framkvæmdir snemma á næsta ári og ljúka þeim árið 2006.
VF-Myndir: 1: Steinþór og Árni Sigfússon, bæjarstjóri, ásamt tilvonandi fjárfesti/Þorgils Jónsson
2: Yfirlitsmynd yfir legu vegarins, neðst á myndinni er merkt svæði fyrir Samgöngumiðstöðvar Íslands