Nýr umhverfisráðherra ekki hrifin af kísilverum
Björt Ólafsdóttir, sem í vikunni tók við embætti umhverfisráðherra, segir tíma mengandi stóriðju liðinn. Frá þessu er greint á Vísi. „Ég er ekki hrifin af kísilverum þar sem þau menga mjög mikið. Ég skil ekki að þeim hafi á sínum tíma verið gefið grænt ljós í gegnum fjárfestingarsamninga af þáverandi stjórnvöldum. Ég verð hins vegar að virða stjórnskipan landsins,“ sagði hún í viðtali á Vísi.
Hér fyrir neðan má sjá færslu Bjartar á Facebook þar sem hún tjáir sig um stóriðju í tengslum við frétt af kísilveri á Bakka við Húsavík.
Í nóvember síðastliðnum tók kísilver United Silicon til starfa í Helguvík. Starfsemin þar er umdeild og hefur borist lyktar- og reykmengun frá verksmiðjunni yfir byggð. Áætlað er að kísilver Thorsil í Helguvík hefji framleiðslu eftir tvö ár. Frestur til að skila inn athugasemdum við veitingu starfsleyfis til Thorsil rann út í byrjun þessarar viku.
Í myndbandinu, sem var tekið á hádegi í dag, má sjá reykmengun frá kísilveri United Silicon.