Nýr stjórnarformaður SpKef: Þurfum klárlega að skera niður og hagræða
„Það eru ofboðslega erfiðir tímar framundan fyrir sparisjóðina ef þeir ætla að lifa af,“ segir Kristján Gunnarsson, nýkjörinn stjórnarformaður Sparisjóðsins í Keflavík. Hann segir nýafstaðinn aðalfund sjóðsins hafa verið þungan og erfiðan en tap á rekstri hans nam 17 milljörðum króna á móti tæplega 2ja milljarða hagnaði árið á undan.
Aðspurður um það hvort SpKef hafi náð fyrir horn í kreppunni eftir bankahrunið segir Kristján að svo sé ekki.
„Við erum samt farin að sjá hornið. Vilyrði fyrir víkjandi láni liggur fyrir. Í neyðarlögunum er kveðið á um aðkomu ríkisins til að styrkja stoðir sparisjóðanna en það bara gerist of hægt. Um leið og við fáum grænt ljós á að ríkið komi með þessi 20% af eigin fé bankans, sem eru fimm milljaraðar, þá erum við komin fyrir hornið og ég hef fulla trú á því að það gerist. Það þurfa að fara fram ótal kannanir, endurskoðanir og matsgerðir áður en græna ljósið kemur en eftir fundi með fulltrúum stjórnvalda er ég bjartsýnn á að þetta sé að komast í höfn.
Núna í dag er sjóðurinn ekki að lána neitt í þessari stöðu og við þurfum að komast upp úr því. Það fer öll orkan í það að halda sjó og halda bankanum opnum. Í raun má segja að starfsfólk sparisjóðsins hafi unnið ákveðið þrekvirki með því halda sjó í þessu fárviðri,“ segir Kristján.
Hann segir að ef sparisjóðirnir lifi af verði þeir að hverfa aftur til uppruna síns þ.e. að snúa sér að þeim grunngildum sem þeir voru upphaflega stofnaðir um í heimabyggð. „Það er alveg ljóst að við verðum ekki í neinni útrás. Við munum ekki horfa í tækifæri til að laga stöðuna með skjótfengnum gróða í verðbréfa-, húsa-, lóða- eða fyrirtækjabraski. Kannski hljómar ekki vel að tala um brask en það þótti ákveðin ágóðavon í þessu. Það er breytt,“ segir Kristján.
Hann segir að framundan sé niðurskurður og hagræðing en fara þurfi betur í saumana á því hvernig henni verði háttað. „Við þurfum kláralega að skera niður og hagræða, það blasir við. Það má búast við því að sjóðurinn verði ekki eins sýnilegur í samfélaginu og verið hefur hvað varðar styrki og framlög til menningar-, félags- og íþróttamála.“
Kristján Gunnarsson, stjórnarformaður SpKef