Nýr meirihluti í Grindavík
Framsókn, Rödd unga fólksins og Sjálfstæðisflokkurinn hafa myndað nýjan meirihluta í Grindavík. Bæjarfulltrúar framboðanna undirrituðu málefnasamning um verkefni og samstarf næsta kjörtímabils í dag.
Nýr forseti bæjarstjórnar verður Ásrún H. Kristinsdóttir fulltrúi Framsóknar fyrir utan 3. árið þegar Helga Dís Jakobsdóttir fulltrúi Raddar unga fólksins gegnir því embætti. Formaður bæjarráðs verður Hjálmar Hallgrímsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Fannar Jónasson bæjarstjóri verður endurráðinn.
Málefnasamningurinn verður birtur að loknum fyrsta bæjarstjórnarfundi nýrrar bæjarstjórnar sem fram fer þriðjudaginn 7. júní.
Áframhaldandi áhersla verður lögð á góða samvinnu fulltrúa í bæjarstjórn og að allir séu vel upplýstir um mál sem koma til umfjöllunar og eða afgreiðslu, segir í frétt frá nýja meirihlutanum.
„Framundan eru metnaðarfull verkefni sem unnin verða í góðu samstarfi bæjarfulltrúa og íbúa Grindavíkurbæjar. Grindavík er gott bæjarfélag en mikilvægt er hugsa til framtíðar og stefna hátt til að gera góðan bæ enn betri. Nauðsynlegt er að styðja við uppbyggingu innviða og þjónustustigs í samræmi við íbúafjölda.“
Síðasti meirihluti Grindavíkur var skipaður sjálfstæðismönnum og Framsókn.
Fannar Jónasson verður áfram bæjarstjóri í Grindavík.