Laugardagur 29. október 2005 kl. 16:17
Nýr kjarasamningur við Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur
Í gær var gengið frá nýjum kjarasamningi milli Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis. Samningurinn gildir til 30. nóvember 2008 eins og aðrir kjarasamningar sem LN hefur undirritað á þessu ári. Kostnaðarhækkun við lok samningstímans er áætluð um 22%.