Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nýr kafli í atvinnusögu með opnun græns gagnavers á Ásbrú
Miðvikudagur 8. febrúar 2012 kl. 18:33

Nýr kafli í atvinnusögu með opnun græns gagnavers á Ásbrú

Ný kafli var skrifaður í atvinnusögu Íslendinga þegar starfsemi hófst með formlegum hætti hjá Verne Global gagnaverinu á Ásbrú, fyrsta gagnaveri landsins. Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ klipptu á borða með Jeff Monroe, forstjóra Verne Global í Víkingaheimum í gær.
Gagnaverið er í 500 fermetra rými sem Varnarliðið nýtti áður fyrir verslun og aðra starfsemi en bygging húsnæðisins hefur staðið yfir frá árinu 2008 og þar starfa um fimmtán manns. Í fyrsta áfanga sem byggður hefur verið á svæði Verne Global er pláss fyrir fimm þúsund netþjóna. Gagnaverið er fyrsti áfangi uppbyggingar á alþjóðlegri miðstöð gagnavera á Ásbrú sem verður knúin af endurnýjanlegum orkugjöfum. Það er líka sérhannað til þess að nýta vindkælingu á svæðinu sem sparar gríðarlegt magn af orku. Það er því hægt að segja að gagnaverið sé umhverfisvænn hátækniiðnaður.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Verne Global áformar að ganga út á markvissa stækkun og að árið 2017 verði gagnaverið fullbúið í fjórum byggingum. Þegar rekstur verði kominn á fullan skrið sé reiknað með að 100 störf skapist hjá fyrirtækinu.
Fyrsti viðskiptavinur Verne Global er bandaríska fyrirtækið Datapipe en það sérhæfir sig í umhverfisvænum lausnum í upplýsingatækni. Umhverfisstofnun Bandaríkjanna hefur veitt fyrirtækinu viðurkenningu vegna umhverfisstefnu þess og forstjóri Datapipe, Robb Allen, segir Verne gefa fyrirtækinu kost á því að halda áfram forystu í umhverfismálum.

Jeff Monroe sagði við vígsluna að þrátt fyrir að stuttu eftir ákvörðun fyrirtækisins um að hefja starfsemi á Íslandi, hafi komið efnahagskreppa og tvö eldgos hefði það ekki stöðvað þá og nú rúmum fjórum árum síðar væri stóra stundin runnin upp. Hann þakkaði mörgum aðilum hér heima fyrir að greiða götu fyrirtækisins, m.a. ríkisstjórn Íslands.

Fjölmargir gestir voru viðstaddir formlega opnun hjá Verne Global í Víkingaheimum í dag. VF-myndir/Eyþór Sæmundsson og Páll Ketilsson.