Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Nýr kafli hafinn þar sem að sama atburðarrás getur endurtekið sig
Ljósmynd: Vilhelm Gunnarsson
Laugardagur 2. desember 2023 kl. 14:49

Nýr kafli hafinn þar sem að sama atburðarrás getur endurtekið sig

Áfram dregur úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga og mælast nú mun færri og smærri skjálftar heldur en síðustu vikur. Flestir skjálftar eru að mælast undir einum að stærð. Virknin er mest milli Sýlingarfells og Hagafells þar sem að kvikugangurinn liggur. Að öllum líkindum er kvikan sem er að safnast undir Svartsengi að fóðra þann kvikugang. Ennþá mælist aflögunum á stöðvum nálægt kvikuganginum en talið er að það sé vegna landriss sem er að eiga sé stað við Svartsengi.

Þrátt fyrir minni virkni við kvikuganginn og næsta nágrenni þá er landris áfram stöðugt við Svartsengi, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Atburðurinn sem hófst þann 25. október með mikilli skjálftavirkni sem náði toppi að kvöldi 10. nóvember þegar 15 km kvikugangurinn myndaðist er ekki lokið. En segja má með nokkurri vissu að nýr kafli sé hafinn þar sem að sama atburðarrás getur endurtekið sig, segir í sömu tilkynningu.

Á þessu stigi er erfitt að segja til um hvenær næsta kvikuinnskot mun eiga sér stað og hvort það komi á svipuðum slóðum. Veðurstofan heldur áfram að vakta svæðið gaumgæfilega.