Nýr grunnskóli í Innri Njarðvík: Byggður í anda Heiðarskóla
Thorchilliusskóli verður næsti grunnskóli í Reykjanesbæ, sá fimmti í röðinni. Hafist verður handa við byggingu skólans í febrúar n.k. og fyrsta áfanga lokið í júlímánuði 2005. Skólinn mun rísa á holtinu ofan við leikskólann Holt í innri-Njarðvík. Gert er ráð fyrir að skólahald hefjist haustið 2005 og að fyrsti áfangi rúmi um 250 börn.
Samhliða uppbyggingu hefst bygging íbúahverfis ofan við tjarnirnar í Innri-Njarðvík og í áttina að Reykjanesbraut. Tjarnahvefið verður án efa eitt fallegasta íbúahverfi á landinu.
Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að ganga frá samningum um leigu á nýja skólahúsnæðinu við Fasteign hf. sem er m.a. í eigu Reykjanesbæjar. Þessi fyrsti áfangi verður boðinn út á næstu dögum.
Byggt er á grunnteikningum Heiðarskóla, með nokkrum breytingum sem reynslan af þeim góða skóla mælir með. Umsamið verð vegna fyrsta áfanga er alls um 615 milljónir kr. sem er um 12% lægri kostnaður en sambærilegir áfangar Heiðarskóla kostuðu. Verði tilboð verktaka hinsvegar hagstæðari mun bærinn njóta þess í lægri kostnaði. Frá þessu eru greint á vef Reykjanesbæjar.
VF-ljósmynd: Oddgeir Karlsson