Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fimmtudagur 29. júlí 1999 kl. 21:38

NÝR FULLKOMINN SJÚKRABÍLL

Brunavörnum Suðurnesja, sem flytja að meðaltali 1170 sjúkraflutninga ár ári, barst á dögunum ný sjúkrabifreið sem leysir elsta bílinn af hólmi. Nýja sjúkrabifreiðin er af gerðinni Ford Econoline árgerð 1999 með 7,3 lítra dísel vél og drifi á öllum hjólum. Bifreiðin er innflutt um IB Innflutningsmiðlun á Selfossi og var drifbúnaði breytt af Jeppasmiðjunni, Ljónsstöðum, Sandvíkurhreppi. Yfirbygging var byggð af Bílaskjóli á Hvolsvelli. Hún er útbúin fullkomnum og öflugum sjúkrabúnaði til neyðarflutninga á slösuðu og sjúku fólki og má þar helst nefna fullkomið hjartastuðtæki, öndunarvél, lífsmarkamæli og fleira sem að notum getur komið við hinar erfiðu aðstæður sem slökkviliðs og sjúkraflutningamenn þurfa oft að fást við. Gamla sjúkrabifreiðin, sem sú nýja leysir af hólmi, er af sömu gerð, árgerð 1991 og ekin rúmar 210 þús. km. Hún verður væntanlega seld hæstbjóðanda.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024