Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nýr framkvæmdastjóri Þróttar í Vogum
Föstudagur 29. júní 2012 kl. 12:57

Nýr framkvæmdastjóri Þróttar í Vogum


Tinna Hallgrímsdóttir hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Ungmennafélaginu Þrótti og mun hún hefja störf í byrjun ágúst.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Starfshlutfall framkvæmdastjóra hefur hingað til verið 30% en hefur nú með nýrri ráðningu verið aukið og verður eftirleiðis 50% starf.

Viðvera á skrifstofu verður meiri en hefur verið áður og er ætlunin að efla starfið til muna.

Tinna er með BA- gráðu frá Háskóla Íslands í Tómstunda- og félagsmálafræðum og hefur mikla reynslu af starfi með ungu fólki og þekkja hana flestir sem hafa komið í félagsmiðstöðina okkar hér í Vogunum, enda hefur hún starfað lengi þar.

Tinna er auk þess heimamaður og bindur stjórn UMFÞ miklar vonir við hennar störf í framtíðinni.