Nýr forstöðumaður flugverndar á Keflavíkurflugvelli
Auður Ýr Sveinsdóttir hefur verið ráðin í stöðu forstöðumanns flugverndar á Keflavíkurflugvelli. Hún hefur síðastliðin fjögur ár verið aðstoðarforstjóri hátæknifyrirtækisins Völku, ásamt því að stýra rekstrar- og mannauðssviði félagsins. Þar áður var hún yfirmaður gæðastjórnunar, LEAN og innri samskipta hjá Rio Tinto (ISAL) í Straumsvík.
Auður er með B.Sc. gráðu í sjávarvísindum frá Coastal Carolina University og M.Sc. í umhverfisefnafræði frá University of Maryland í Bandaríkjunum.
„Auður er með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu sem mun nýtast okkur vel í uppbyggingu einingarinnar til framtíðar,“ segir Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar hjá Isavia. „Hún er frábær viðbót við reynslumikinn hóp í flugverndinni á Keflavíkurflugvelli.“