Bygg
Bygg

Fréttir

Nýr dómaraskúr á keppnissvæði Mána
Föstudagur 14. maí 2004 kl. 15:54

Nýr dómaraskúr á keppnissvæði Mána

Nýjum dómaraskúr var komið fyrir á Mánagrund, keppnissvæði hestamannafélagsins Mána í dag en Íslandsmót fullorðinna verður haldið á svæðinu dagana 23. til 25. júní í sumar. Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á svæðinu þar sem búist er við um 2000 manns til Reykjanesbæjar í tengslum við mótið.
Tvennir feðgar, Bragi Guðmundsson og sonur hans Sveinbjörn og Axel Vilhjálmsson og sonur hans Óli gerðu skúrinn upp sem er gamall vinnuskúr frá Reykjanesbæ. Verkið hafa þeir unnið í sjálfboðavinnu en þeir eru allir miklir hestamenn. Byko gaf allt efni í skúrinn.
Að sögn Braga breytir skúrinn allri aðstöðu á keppnissvæði Mána. „Í skúrnum verður aðstaða fyrir ritara og annað starfsfólk svæðisins,“ sagði Bragi í samtali við Víkurfréttir.
Um næstu helgi verður haldið innanfélagsmót Mána og segir Bragi að með því sé í raun verið að prófa svæðið.

Myndirnar: Skúrnum komið fyrir á sinn stað. Smíðafeðgar f.v.  Axel Vilhjálmsson, Óli Vilhjálmsson, Bragi Guðmundsson og Sveinbjörn Bragason. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn