HSS
HSS

Fréttir

Nýr Bláalónsvegur lítið sem ekkert notaður
Mánudagur 30. desember 2002 kl. 14:13

Nýr Bláalónsvegur lítið sem ekkert notaður

Nýr vegur sem tengir Grindavík við Bláa lónið er lítið sem ekkert notaður. Svo virðist sem fáir viti af tilvist vegarins og þeir sem sjá hann hafa ekki hugmynd um hvert vegurinn liggur. Engar merkingar eru við veginn og hefur minnihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur séð ástæðu til að gera bókun um málið. Þar segir: Bæjarstjóra verði falið að koma upp greinargóðri merkingu við báða enda nýja Bláalónsvegar sem sýni annars vegar Grindavík og hinsvegar Bláa Lón. Merkingarnar verði komnar upp eigi síðar en 31. desember n.k.Í greinargerð með tillögu þeirra Hallgríms Bogasonar og Dagbjarts Willardssonar segir:
„Hálft ár er nú liðið síðan langþráður draumur um veg sunnan Þorbjarnar varð að veruleika. Vegurinn tengir hið stórfenglega Bláa Lón við byggðina í Grindavík og er ætlaður m.a. til að auka umferð ferðamanna og vera þar með ein af traustum stoðum í atvinnusögu Grindavíkur.
Þrátt fyrir margítrekaðar ábendingar minnihlutans mánuðum saman gerist ekkert í merkingarmálum og neyðumst við því til að leggja þetta fram í tillöguformi. Þar sem nær engir vita af vegninum er hann svo til ekkert notaður.
Hallgrímur Bogason
Dagbjartur Willardsson“

„Meirihluti bæjarstjórnar tekur undir áhyggjur minnihlutans varðandi uppsetningu á skilti við Bláalónsveg um Lágafell. Meirihlutinn bendir á að allri vegagerð sem tilheyrir Vegagerð ríkisins eiga að vera merkingar sem vísa til þess hvert viðkomandi vegur liggur.
Vegagerðin hefur ekki lokið við uppsetningu viðkomandi skiltis og verður það að teljast óviðunandi.
Það skal upplýst að ferðamálafulltrúi er að vinna að undirbúningi fyrir enn frekari merkingar og er stefnt að því að því ljúki fyrir upphaf ferðamannatímans.“
Undir þetta ritar meirihluti D- og S-lista

Myndin: Loftmynd sem sýnir hluta vegarins frá Grindavík og að Þorbirni. Unnið upp úr loftmynd Mats Wibe Lund.
Bílakjarninn
Bílakjarninn