Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nýr björgunarbátur sjósettur með viðhöfn
Mánudagur 21. júní 2010 kl. 13:29

Nýr björgunarbátur sjósettur með viðhöfn

Björgunarsveitin Suðurnes sjósetti í gær nýjan harðbotna björgunarbát sem fékk nafnið Njörður Garðarsson. Hann er meðal sjö öflugra björgunarbáta sem björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar festu kaup á nýlega.

Nýju bátarnir bætast við 14 björgunarskip og um 70 léttabáta sem þegar eru í eigu björgunarsveita allt í kringum landið. Það eru björgunarsveitirnar Gerpir á Neskaupsstað, Geisli á Fáskrúðsfirði, Ársæll í Reykjavík, Suðurnes í Reykjanesbæ, Björg á Eyrarbakka og Brimrún á Eskifirði sem keypt hafa bátana.

Séra Sigfús B. Ingvarsson blessaði bátinn við athöfnina og boðið var upp á kaffi og með því í tilefni dagsins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ljósmyndir frá athöfninni eru komnar inn á ljósmyndavef Víkurfrétta, sjá hér.

Myndir/Sölvi Logason.