Nýkominn með prófið og tekinn á 169 km. hraða
Lögreglan stöðvaði ungan ökumann á 169 kílómetra hraða á Reykjanesbraut aðfaranótt sunnudags. Að sögn lögreglu var maðurinn nýkominn með bráðabirgðaökuskírteini og var sviptur því á staðnum.
Þá voru níu aðrir stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Allir héldu þeir þó ökuleyfinu, en fá að greiða í ríkissjóð fyrir hraðaksturinn.
Þá voru níu aðrir stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Allir héldu þeir þó ökuleyfinu, en fá að greiða í ríkissjóð fyrir hraðaksturinn.