Nýjar námsleiðir í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar mun frá og með þessu skólaári, 2022-2023, bjóða upp á þrjár nýjar námsleiðir. Annars vegar er það sérstakt lúðrasveitarnám fyrir byrjendur á blásturshljóðfæri og hins vegar tvær nýjar leiðir innan klassískrar söngdeildar.
Lúðrasveitarnámið á blásturshljóðfæri sem áður hét „kynningarnám“ er ætlað börnum sem eru í 3. og 4. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar og eru að sækja um nám við Tónlistarskólann í fyrsta sinn. Um er að ræða samfellt nám allt skólaárið en hljóðfæratímar verða styttri en venja er.
Auk þess að nemendur læri á leika á blásturshljóðfærið sem þeir velja sér, þá er markmiðið er að þeir myndi lúðrasveit á haustönninni og kynnist því að vinna í tónlistarhópi og þeirri ábyrgð og tillitssemi sem því fylgir.
Tónlistarskólinn býður upp á sérstaka deild, Söngleikjadild, sem hefur það að markmiði að þjálfa nemendur í leiklist, söng og hreyfingum á söngleikjasviði. Námið hentar öllum sem hafa áhuga á söngleikjum og sviðslistum og er mjög gagnlegt fyrir nemendur sem stefna á að taka þátt í söngleikjum eða nemendur sem hyggjast fara í leiklistarnám eða söngleikjanám hérlendis eða erlendis. Söngleikjadeildin er ætluð nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla og nemendum í framhaldsskóla og eru með lögheimili í Reykjanesbæ. Deildin er tveggja ára nám. Nemendur fá söngkennslu einu sinni í viku og hóptíma einu sinni í viku en í þeim tíma er farið í sviðsframkomu og nemendum gefst tækifæri til að syngja saman í smærri eða stærri hóp þau lög sem verið er að vinna með hverju sinni. Nemendur fá svo undirleikstíma einu sinni í viku. Á seinna námsárinu bætist við sérstakur nótnalesturstími einu sinni í viku.
Söngleikjadeildin er tveggja ára nám. Ef nemendur vilja halda áfram námi eftir að söngleikjadeild lýkur, flytjast þeir sjálfkrafa yfir í almenna söngdeild.
Önnur ný deild tengd söngnámi, Kórdeild, hefur verið sett á laggirnar. Um er að ræða sérstaka deild ætlaða einstaklingum, óháð aldri, sem eru í kór eða hafa áhuga á því að vera í kór og vilja auka við söngkunnáttu sína og bæta raddbeitingu. Eins og aðrir nemendur skólans, þurfa nemendur Kórdeildar að hafa lögheimili í Reykjanesbæ. Nemendur fá einkatíma í söng einu sinni í viku og kennslu í nótnalestri einu sinni í viku, þar sem lögð er áhersla á undirstöðuatriði í að lesa hryn og tónferli. Kórdeildin er eins árs nám. Ef nemendur vilja halda áfram námi eftir að kórdeildarnámi lýkur, flytjast þeir sjálfkrafa yfir í almenna söngdeild.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Tónlistarskólans tonlistarskoli.reykjanesbaer.is eða á skrifstofu skólans í síma 420-1400. Skrifstofan er opin frá kl. 9 -17 alla virka daga.
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í einhverja af ofangreindum námsleiðum, en umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst n.k. Það eru ennþá laus örfá pláss.
Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri.