Fimmtudagur 2. desember 1999 kl. 16:35
NÝJAR ÍBÚÐIR Í ÚTGARÐI
Bygginga- og skipulagsnefnd Gerðahrepps hefur samþykkt deiliskipulag í Útgarði þar sem gert er ráð fyrir að hægt verði að byggja allt að 49 íbúðir. Búmenn hafa þegar sýnt áhuga á að fá lóðir á þessum stað. Deiliskipulagið er nú til sýnis á skrifstofu Gerðahrepps.