Bygg
Bygg

Fréttir

Nýjar flugvélar Keilis marka þáttaskil í flugnámi hér á landi
Þriðjudagur 20. október 2009 kl. 14:05

Nýjar flugvélar Keilis marka þáttaskil í flugnámi hér á landi


Flugakademía Keilis á Ásbrú kynnti í dag nýjan flugvélaflota skólans en hann markar þáttaskil í flugþjálfun á Íslandi. Vélarnar eru af gerðinni Diamond og eru tæknilega þær fullkomnustu sem hafa verið notaðar í flugþjálfunar hér á landi.

Vélarnar eru fimm talsins, bæði eins og tveggja hreyfla. Þær eru gerðar út koltrefjaefnum og þykja mun öruggari og hagkvæmari heldur en vélar smíðaðar úr áli. Koltrefjaefnin þola t.d. mun meira við brotlendingu.
Að sögn Kára Kárasonar, yfirflugkennara skólans, hafa Diamond vélarnar einstaklega góða flugeiginleika sem gera þær afar hentugar fyrir flugþjálfun á Íslandi. Vegna mikils vænghafs næst mikið öryggi ef hreyfill bilar á flugi því vélin hefur 40% meiri svifeiginleika heldur en aðrar vélar af svipaðri stærðargráðu.
Mörg nýmæli eru jafnframt í stjórnborði vélarinnar. Í stað ótal mekkanískra mælitækja eru komnir tveir stórir tölvuskjáir þar sem allar helstu flugupplýsingar koma fram. Vélarnar eru búnar tveimur GPS tækjum ásamt hefðbundnum siglingatækjum sem leyfa flug við blindflugsskilyrði. Vinnuumhverfi flugmanssins er því ekki eins flókið og var áður. Til dæmis er eldsneytisinngjöf stjórnað með tveimur hnúðum í þessum vélum í stað sex í eldri vélum.

Að sögn Hjálmars Árnasonar, skólastjóra, stunda nú 40 manns einkaflugmannsnám við Flugakademíu Keilis en skólinn býður upp á margskonar nám í flugtengdum greinum, s.s. atvinnuflugnám, flugþjónustunám og flugumferðarstjórn. Í undirbúningi er nám í flugvirkjun og flugrekstri. Þá býður skólinn upp flugverndarnámskeið sem starfsmenn á flugverndarsvæðinu verða að undirgangast.

Efri mynd: Önnur tveggja DA40 TDI véla Keilis á flugi í morgun.

Neðri mynd: Tölvuskjáir hafa leyst af hólmi ótal mæla. Vinnuumhverfi flugmannsins er því orðið mun einfaldara og þægilegra.


Bílakjarninn
Bílakjarninn

VFmyndir/elg.