Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nýir göngu- og hjólreiðastígar verða 12,2 km
Frá lagningu göngu- og hjólreiðastígs meðfram Grindavíkurvegi. VF-mynd: Hilmar Bragi
Miðvikudagur 16. desember 2015 kl. 09:33

Nýir göngu- og hjólreiðastígar verða 12,2 km

Grindavíkurbær hefur undanfarin ár unnið að uppbyggingu göngu- og hjólreiðastíga. Á árunum 2012-2014 var lagður göngu- og hjólastígur meðfram hitaveitulögn frá Nesvegi og að Selskógi, eldri stígur frá vatnstanki að Selskógi var byggður upp að hluta og endurbættur. Frá Selskógi var lagður stígur þvert yfir hraunið að Lækningalind og frá henni var lagður stígur sem tengir Lækningalind við þjónustuhús og að bílastæði Bláa Lónsins. Samtals eru stígar þessir um 5 km að lengd. Malbikaður hluti þessara stíga er um 2 km og nær frá Nesvegi að bílastæði vatnstanks við Þorbjörn. Þetta kemur fram í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar.

Á síðasta ári var lagður malbikaður stígur frá Lækningalind meðfram hluta Bláalónsvegar og að vatnstanki við hótel Northern Light Inn. Frá vatnstanki og að Bláalónsvegi við gatnamót að Grindavíkurvegi var stígur lagður eftir gömlum vegslóða, þar þverar stígurinn Bláalónsveg og liggur síðan nánast samsíða Grindavíkurvegi að áningarstað og bílastæði á Gíghæð. Samtals eru þessir stígar frá Lækningalind að Gíghæð um 2,9 km.

Í ár hefur verið unnið við lagningu á stíg frá bílastæði á Gíghæð í átt að landamörkum Grindavíkur við Seltjörn og er áætluð lengd þessa áfanga um 2,0 km. Gert er ráð fyrir að þessi áfangi verið malbikaður vorið 2016. Lokaáfanginn verður um 2,3 km langur frá enda núverandi áfanga að landmörkum og er gert ráð fyrir að vinnu við hann ljúki á árinu 2016/2017.

Þegar lagningu stíga að landamörkum Grindavíkur við Seltjörn er náð þá verða stígar samtals um 12,2 km að lengd og malbikaður hluti þeirra verður um 9,2 km.

Malbik sem notað hefur verið í stíga er svokallað „grænt malbik" og er talið mun umhverfisvænna en hefðbundið malbik. Efnið er kallað kaldblandað malbik og er með 100% endurunnu efni, kostnaður vegna þessa er skv. upplýsingum frá framleiðanda um 30-45% ódýrara en hefðbundin malbikun.

Aðalverktaki við lagningu þessara stíga hefur verið verktakafyrirtækið G.G. Sigurðsson ehf í Grindavík og malbikun verið unnin af Hlaðbær-Colas.

Stígagerð þessi hefur verið kostuð og unnin í samstarfi Grindavíkurbæjar, HS-Orku, Bláa Lónsins og Vegagerðarinnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024