Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Fréttir

Ný vararafstöð sett upp í Þorbirni
Mánudagur 16. október 2023 kl. 06:04

Ný vararafstöð sett upp í Þorbirni

Tæknimenn frá Mílu voru á Þorbirni við Grindavík á dögunum þar sem þeir unnu að því að koma fyrir nýrri varanlegri vararafstöð í stað þeirrar eldri sem hafði verið dæmd ónýt. Í gosinu í sumar var farið með færanlega stöð á Þorbjörn, til að viðhalda rafmagnsöryggi meðan á gosinu stóð, en nú er komin varanleg stöð sem mun auka fjarskiptaöryggi á svæðinu enn frekar.

Þorbjörn er mjög mikilvægur fjarskiptastaður og sérstaklega nú þegar jarðhræringar eru orðnar árlegur viðburður á Reykjanesi eins og hefur verið síðustu ár. Það er því mjög mikilvægt að þar sé vararafstöð ef til rafmagnsleysis kemur á svæðinu, segir Míla á fésbókarsíðu sinni og birtir myndir frá uppsetningu varaaflstöðvarinnar.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25