Ný sýning á Listasafni Reykjanesbæjar
Laugardaginn 12. mars n.k. kl. 15.00 verður opnuð í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum sýningin Erlingur Jónsson og samtímamenn. Erlingur Jónsson varð fyrstur til að hljóta heiðursnafnbótina Listamaður Keflavíkur sem nú kallast Listamaður Reykjanesbæjar. Erlingur þótti vel að þessum titli kominn þar sem hann hafði í áratugi unnið að listsköpun í þágu bæjarbúa, bæði með eigin verkum og ekki síður sem áhrifavaldur ungra og upprennandi listamanna í bænum en hann starfaði lengi sem kennari við grunnskóla bæjarins. Síðustu árin hefur Erlingur lifað og starfað í Osló.
Á þessari sýningu er lögð áhersla á að sýna lágmyndir Erlings Jónssonar og brjóstmyndir en þær hafa ekki áður verið sýndar saman og sumar aldrei sést opinberlega fyrr. Einnig er persónuleika Erlings gerð skil með ljósmyndum og myndbandi, því maðurinn sjálfur er lífsins listaverk! Í sýningarskránni segir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur m.a. um Erling: “ Þetta tvennt, innlifunarhæfileikinn og bókmenntirnar, er sennilega það sem sett hefur ríkulegast mark á listsköpun Erlings sjálfs. Hið fyrrnefnda skýrir að hluta næmið sem kemur fram í myndum af samtímamönnum, meðvitundina um að sérhver andlitsdráttur skipti máli þegar móta skal eftir lifandi andliti. Bókmenntirnar eru svo kveikjan að mörgum og fjölbreytilegum skúlptúrum listamannsins, sem velunnarar hans í Keflavík hafa sett upp í bæjarlandinu á undanförnum árum. “ Í sýningarskránni er einnig yfirlitskort af bænum þar sem búið er að staðsetja verk Erlings og gestum þannig gert auðveldara að skoða verkin í eðlilegu umhverfi.
Auk verka Erlings Jónssonar má sjá á sýningunni ljósmyndir eftir Arnar Fells, Tom Sandberg og Vigdis Hindhammer og einnig er myndband eftir Viðar Oddgeirsson sem m.a. er byggt á viðtali Jónatans Garðarssonar við Erling.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00 – 17.30 og stendur til 24. apríl.