Ný stjórn Foreldrafélags Heiðarskóla
Aðalfundur FFHS var haldinn fimmtudaginn 25. nóvember síðastliðinn á sal Heiðarskóla. Góð mæting var frá foreldrum og stjórnendum skólans. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa flutti erindi Jóhannes Kristbjörnsson, lögreglumaður sem starfar að forvörnum hjá Lögreglunni í Reykjanesbæ. Sagði hann m.a. frá athyglisverður verkefni innan lögreglunnar sem felst í því að úthluta hverri vakt lögreglunnar ákveðið skólasvæði til eftirlits í samráði við foreldra. Munu foreldrar á skólasvæðinu vera í nánu samstarfi við sína vakt og taka þátt í eftirliti og veita upplýsingar um allt það sem kann að nýtast lögreglunni í baráttunni við afbrot og fíkniefni.
Ný stjórn og formaður voru kjörinn á fundinum. Viktor B. Kjartansson var kjörinn formaður og aðrir í stjórn Gísli V. Harðarson, Ingibjörg Frederiksen, Helena Guðjónsdóttir og Kristján F. Geirsson. Í varastjórn voru kjörnir Júlíus Steinþórsson og Smári Helgason.